Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri VÍS. Óskar tekur við af Andra Ólafssyni sem hverfur til starfa á öðrum vettvangi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VÍS.

Óskar Hrafn hefur áralanga reynslu af fjölmiðlum, var meðal annars fréttastjóri á Stöð2, Vísi.is og DV.  Hann var um tíma yfirmaður Stöðvar 2 Sport en hefur að mestu unnið sjálfstætt sem ráðgjafi undanfarin misseri.

Hjá VÍS mun Óskar Hrafn stýra miðlun upplýsinga til fjölmiðla og markaðsaðila. Til viðbótar mun hann bera ábyrgð á mótun ófjárhagslegrar upplýsingagjafar og samfélagsábyrgð félagsins.

Hann mun hefja störf í byrjun apríl.

Óskar Hrafn sinnir auk þess þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Gróttu, en liðið er nýliði í Inkasso deildinni, sem er næst efsta deild. Á sínum tíma lék Óskar Hrafn sjálfur knattspyrnu, lengst af með meistaraflokki KR. Þá á hann að baki þrjá A-landsleiki.