Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) á árinu 2021 var neikvæð um 4,7 milljarða króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 10,1 milljarð króna  árið 2020. Rekstrartekjur námu 21 milljarði króna og jukust um ríflega 6 milljarða króna frá fyrra ári. Rekstrartap fyrir fjármagnsliði og skatta nam 3,9 milljörðum króna og stóð nánast í stað milli ára. Heildarafkoma eftir skatta nam 321 milljón króna, en til samanburðar var heildarafkoma eftir skatta neikvæð um 13 milljarða króna árið 2020. Stóran hluta þeirrar breytingar má rekja til jákvæðra gengisáhrifa vegna langtímalána í erlendum gjaldmiðlum og einskiptis vaxtatekna. Þetta kemur fram í ársuppgjöri Isavia.

Handbært fé nam tæplega 15 milljörðum króna í lok síðasta árs og eigið fé nam hátt í 37 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall var 41,5% um síðustu áramót.

„Áhrifa kórónuveirunnar gætti enn verulega á rekstur félagsins þrátt fyrir mikinn viðsnúning á fyrri hluta ársins en tekjur jukust um 6,1 milljarða króna eða 41% samanborið við árið á undan. Ef horft er til ársins 2019 nam tekjusamdrátturinn árið 2021 um 46% fyrir samstæðu Isavia en 72% ef eingöngu er horft til reksturs móðurfélagsins sem sinnir rekstri Keflavíkurflugvallar. Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 58% milli ára og voru þeir 2,2 milljónir árið 2021 samanborið við 1,4 milljónir árið á undan,“ segir í fréttatilkynningu Isavia.

„Þrátt fyrir að áhrifa kórónuveirunnar hafi gætt verulega  í rekstri flugvalla og flugleiðsöguþjónustu hjá okkur á síðasta ári má segja að árið 2021 hafi markað ákveðin tímamót," er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia. „Þau flugfélög sem flugu til Keflavíkurflugvallar árið 2019 snéru aftur og með afnámi sóttvarnarráðstafana á landamærum Íslands má segja að síðustu hindruninni sem eftir stóð hafi verið hrundið úr vegi. Við finnum fyrir miklum áhuga á Íslandi frá okkar flugfélögum og þrátt fyrir að kórónuveiran hafi enn  áhrif á líf okkar allra þá þarf ekki mikið að gerast til að við förum fram úr þeim  forsendum sem spár gefa til kynna um fjölda farþega á þessu ári. Við sjáum ekki enn hver áhrif stríðsins  í Úkraínu kunna að verða á ferðalög farþega til og frá Íslandi en fylgjumst auðvitað vel með stöðu mála."

Uppbygging Keflavíkurflugvallar gangi vel og það sé útlit fyrir að 2022 verði metár þegar kemur að framkvæmdum á flugvellinum.

„Uppbyggingin mun gera okkur kleift að taka enn betur á móti sívaxandi fjölda farþega á næstu árum og auka samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar. Það mun styðja við fjölgun flugtenginga sem er lykilatriði þegar kemur að lífsgæðum og velsæld á Íslandi," segir Sveinbjörn. „Framkvæmdir eru að mestu enn á áætlun en við finnum þó þegar fyrir áhrifum stríðsins í Úkraínu á aðfangakeðjuna í framkvæmdunum."