Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákærur á nokkra einstaklinga vegna meintra samkeppnislagabrota Húsasmiðjunnar. Þetta bætist við ákærur á hendur nokkrum starfsmönnum Byko sem greint var frá í gær. Ákæran grundvallast einkum á meintu verðsamráði starfsmanna BYKO og Húsasmiðjunnar og Úlfsins byggingarvara á árunum 2010 og 2011.

Fram kemur í tilkynningu frá Húsasmiðjunni að yfirstjórn og eigendur Húsasmiðjunnar munu á næstunni kynna sér efni þeirra ákæra sem snerta núverandi starfsmenn Húsasmiðjunnar og meta í framhaldi hvort ástæða sé til sérstakra viðbragða.

Tekið er fram í tilkynningunni að þau atvik sem urðu tilefni til afskipta Samkeppniseftirlitsins áttu sér stað áður en danska byggingavörukeðjan Bygma Gruppen A/S keypti rekstur og eignir Húsasmiðjunnar af Framtakssjóði Íslands í desember 2011. Tekið var fram á þeim tíma að fyrri eigendur tækju ábyrgð á skuld­bind­ing­um gagn­vart ís­lensk­um yf­ir­völd­um vegna mögu­legrar sektar vegna meintra sam­keppn­islaga­brota sem Sam­keppnis­eft­ir­litið hafði til meðferðar.

Þá segir í tilkynningunni að stjórnendur og starfsmenn Húsasmiðjunnar hafi á undanförnum þremur árum hlotið reglulega fræðslu um samkeppnismál og samkeppnisrétt frá óháðum fagaðilum. Ákærur sérstaks saksóknara eru fyrirtækinu mikil vonbrigði og þeim starfsmönnum sem í hlut eiga afar þungbærar. Það er einlæg von eigenda og yfirstjórnar Húsasmiðjunnar að niðurstaða dómstóla verði á þann veg að ekki séu tilefni til sakfellingar einstaklinga vegna þessara mála.