Sigmar Vilhjálmsson, eigandi Munnbitans, móðurfélags Minigarðsins og Bryggjunnar Brugghúss, hefur sett á fót skólastyrkjakerfi fyrir starfsmenn sína. Stuðningurinn felur í sér að skólagjöld eru greidd af félaginu, en séu þau verulega há er gert sér samkomulag um það milli félagsins og starfsmannsins. Auk þess munu launataxtar starfsmanna sem hljóta námsstyrk vera hækkaðir. Lagðar verða 347 krónur ofan á laun fyrir hverja unna klukkustund, en miðað er við að starfsmaður vinni að lágmarki 50 klukkustundir á mánuði. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Í veitingarekstri er hátt hlutfall starfsmanna hlutastarfsmenn. Ungt fólk sem er að vinna á kvöldin og um helgar samhliða námi. Námsmenn búa við ansi erfitt umhverfi oft á tíðum og það er kostnaðarsamt að stunda nám. Undirritaður hefur í þó nokkur ár gengið með hugmynd í maganum um hvernig hægt sé að styðja góða starfsmenn sem annaðhvort stunda nám eða hafa hug á því. Þessi hugmynd heitir „Skólastyrkur" og er loksins orðin að veruleika í nýju félagi sem ber heitið Munnbitinn. Til þess að koma þessari hugmynd af stað þurfti framsýna stjórn og hluthafa,“ segir í orðsendingu Sigmars.

Þar segir jafnframt að skólastyrkur Munnbitans sé hugsaður fyrir framúrskarandi starfsmenn Munnbitans sem stunda nám samhliða starfi. Skólastyrkurinn sé ætlaður til að létta undir með starfsmanni á meðan á námi stendur með tilfærslum á vöktum vegna anna og með fjárhagsstuðningi. Einnig taki Skólastyrkurinn mið af því að tryggja starfsmanni örugga sumarvinnu á milli anna í skólanum og létta með því áhyggjur af sumarstarfi sem sé þekkt áhyggjuefni hjá mörgum námsmönnum.

„Skólastyrkurinn er hagur starfsmanns og félagsins. Með skólastyrknum er félagið að hjálpa starfsmanninum að ná sýnum markmiðum í náminu og um leið er starfsmaðurinn að hjálpa félaginu að ná sínum markmiðum sem er minni starfsmannavelta og þá einnig sterkari liðsheild í starfsmannahópnum,“ segir í tilkynningu Sigmars, auk þess sem rakið er hvað einkenni framúrskarandi starfsmann:

  • Áreiðanlegur starfsmaður: Mæting á réttum tíma. Lítið um breytingar á vöktum.
  • Ábyrgur starfsmaður: Vinnur að heilindum og kemur sér ekki undan verkum.
  • Góður félagi: Vel metinn af samstarfsfólki.
  • Gleðin að leiðarljósi: Jákvætt viðmót gagnvart þeim verkefnum sem eru fyrir hendi.
  • Traustur starfsmaður: Hægt að treysta starfsmanni fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir.
  • Frumkvæði: Starfsmaður sýnir frumkvæði í úrlausnum og hugmyndum til úrbóta.

Að lokum segir Sigmar Munnbitann vilja deila þessari hugmynd og sýn þeirra með öðrum atvinnurekendum og hvetja þá til að styðja sitt fólk til ná markmiðum sýnum.