Fjórir starfsmenn hafa gengið til liðs við ferðaþjónustukjarnann í Hvammsvík, þar sem stefnt er að opnun sjóðbaða nú í sumar. Önnur afþreying og þjónusta, þar á meðal aukin gistiaðstaða og veitingastaður, mun fylgja í kjölfarið. Hilmar Þór Bergmann gegnir stöðu hótel- og rekstrarstjóra, Fríða Jónsdóttir er sölu- og markaðsstjóri, Gróa Jónsdóttir aðalbókari og Guðmundur Guðjónsson umsjónarmaður kerfa og fasteigna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hilmar Þór Bergmann mun bera ábyrgð á daglegum rekstri í Hvammsvík. Hann er með háskólagráðu í hótel- og ferðamannastjórnun frá César Ritz í Sviss og hefur unnið við ferðaþjónustu síðastliðin 12 ár. Hilmar kemur til starfa í Hvammsvík eftir tæp 10 ár við hótelstjórnun í London, nú síðast sem hótelstjóri Radisson Blu Edwardian Grafton við Tottenham Court Road. Einnig hefur hann stýrt Radisson Blu Edwardian Sussex hótelinu við Marble Arch ásamt því að vera framkvæmdastjóri miðlægs þjónustusviðs hjá Edwardian Hotels London.

Fríða Jónsdóttir sér um uppbyggingu vörumerkisins og markaðssetningu. Hún lagði stund á viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði í Háskóla Íslands og Edith Cowan University í Ástralíu og er með Mastersgráðu frá London School of Economics. Fríða vann að þróun, uppbyggingu og stýringu vörumerkja á alþjóðavísu hjá Össuri í meira en áratug, þar af sem markaðsstjóri í Asíu í 6 ár. Síðastliðin tvö ár hefur Fríða starfað sem markaðsstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kara Connect.

Gróa Jónsdóttir ber ábyrgð á bókhaldi, launavinnslu, innheimtu og innkaupum. Hún lauk námi sem viðurkenndur bókari árið 2006, auk viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2021. Hún hefur víðtæka reynslu af bókhalds- og skrifstofustörfum, m.a. hjá Brynju Hússjóði, Vatnajökulsþjóðgarði, Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Mennta- og menningamálaráðuneyti.

Guðmundur Guðjónsson hefur umsjón með kerfum, dælustöðvum og fasteignum í Hvammsvík. Hann er vélvirki að mennt, hefur rekið eigin stjálsmiðju og unnið fyrir byggingamarkaðinn. Auk þess hefur hann talsverða reynslu af nýtingu jarðvarma, sem kemur til með að nýtast vel við uppbyggingu sjóbaðanna í Hvammsvík.

Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri Hvammsvíkur :

„Íslensk náttúra í öllu sínu veldi er einstök og er ég sannfærður um að ferðaþjónustan á Íslandi muni halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum. Hvammsvík er náttúruperla í miðjum Hvalfirðinum og ég hlakka til að byggja hana upp sem áfangastað, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn, með þessu frábæra og fjölbreytta teymi.

Markmið okkar og sérstaða er að setja náttúruna og umhverfið í fyrsta sæti og öll upplifun mun byggjast á því.  Gestir munu njóta í heitum náttúrulaugum bókstaflega í fjöruborðinu, sem sumar hverjar birtast og hverfa á víxl þar sem Atlantshafið flæðir í og úr laugunum. Þær verða þannig misheitar, allt frá 40C niður í hitastig sjávar.”