Stéttarfélögin fjögur sem leitt hafa, eins og segir í fréttatilkynningu, yfirstandandi kjaraviðræður, VR, Efling, VLFA og VLFG, lýsa reiði og sárum vonbrigðum með þær tillögur sem ríkisstjórnin lagði fram á fundi með forseta og varaforsetum ASÍ í dag, 19. febrúar. Bjarni Benediktsson mun kynna áætlanirnar um breytingar í skattamálum á fréttamannafundi klukkan fimm í dag.

Viðræður hafa staðið tæpt eftir að SA lögðu fram tilboð í síðustu viku sem leitt hefði til kaupmáttarrýrnunar fyrir stóra hópa launafólks segja félögin jafnframt og segja að SA hafi í kjölfarið hafnað sanngjörnu gagntilboði samflotsfélaganna.

„Vonir stóðu til að aðkoma stjórnvalda gæti hleypt glæðum í viðræður. Ljóst er að tillögur stjórnvalda gera þær vonir að engu," segir í tilkynningunni. Fundað verður í baklandi stéttarfélaganna á næstu sólarhringum og á fimmtudag funda formenn félaganna með SA hjá Ríkissáttasemjara.

Samflotsfélögin standa sameinuð og staðföst í kröfunni um að launafólk geti lifað af launum sínum og að stjórnvöld geri löngu tímabærar kerfisbreytingar í réttlætisátt segir jafnframt í tilkynningunni sem undir skrifa þau:

  • Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
  • Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – stéttarfélags
  • Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur
  • Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ