Flutningsfyrirtækið Smyril Line Ísland ehf. hagnaðist um 103 milljónir króna á síðasta ári og jókst hagnaður verulega frá fyrra ári er hann nam 14 milljónum króna. Rekstrartekjur félagsins námu tæplega 4,5 milljörðum króna og jukust um 104 milljónir króna frá fyrra ári.

Eignir félagsins námu 1,3 milljörðum króna og skuldir 1,2 milljörðum króna, en þar af voru 753 milljónir skuldir við tengd félög. Þá nam eigið fé 142 milljónum króna í lok síðasta árs. Linda Björk Gunnlaugsdóttir er framkvæmdastjóri félagsins.