Svar og 1819 – Nýr valkostur hafa gert með sér samning um innleiðingu nýrra lausna í upplýsingaveitum fyrir viðskiptavini fyrirtækjanna.

,,Þetta er spennandi samstarf á milli fyrirtækjanna tveggja. Svar útvegar og innleiðir hugbúnaðarlausnir og þjónustuver fyrir 1819. Svar og 1819 vinna síðan sameiginlega við innleiða og  þróa þjónustuveitu, sem er gagnagrunnur með upplýsingum um innlend fyrirtæki ásamt tengiliðaupplýsingum. Samstarf þetta mun leiða af sér nýtt þjónustuframboð á markaði sem 1819 þróar og viðheldur, og tryggir þjónustuaðgang alla daga, allan sólarhringinn, og Svar selur til sinna viðskiptavina," segir Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Svars.

Ágústa Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri 1819 segir að markmiðið með samstarfinu sé að bæta enn frekar rekstrarumhverfi 1819, með aukinni sjálfvirknivæðingu og lækkun rekstrarkostnaðar með því að nýta lausnir sem Svar býður upp á.

,,Við erum byrjuð að þróa nýja þjónustuveitu sem er gagnagrunnur með upplýsingum um innlend fyrirtæki ásamt tengiliðaupplýsingum og frekari markhópa greiningu. 1819 á og rekur þjónustuveituna meðan að Svar verður endursöluaðili þjónustuveitunnar, sem einkum verður hluti af innleiðingum á webCRM hjá viðskiptavinum Svars. Fyrirtæki sem eru með CRM kerfi geta fengið áskrift hjá okkur inn í þessa þjónustuveitu til að aðstoða þau í sölu- og markaðssetningu,“ segir hún.