Meniga tapaði ríflega sjö milljónum evra eða sem nemur tæpum milljarði króna á síðasta rekstrarári sem rann sitt skeið á enda í marslok.

Tap félagsins jókst á milli rekstrarára en í fyrra nam það 5,5 milljónum evra. Tekjur félagsins námu 11,5 milljónum evra og stóðu nánast í stað milli rekstrarára. Eignir félagsins námu tæplega 29 milljónum evra við lok rekstrarársins. Af því nam verðmat viðskiptavildar og annarra óáþreifanlegra eigna um 13,5 milljónum evra