Forsvarsmenn Þórsbergs ehf. á Tálknafirði hafa gert samning við Brim hf. um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Grábrók ehf. Þórsberg ehf. mun greiða fyrir viðskiptin með hlutafé í félaginu og mun Brim eiga tæplega 41% hlut í Þórsbergi eftir viðskiptin. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Brimi.

Grábrók ehf. hefur gert út krókabátinn Steinunni HF 108. Með honum fylgir um 850 tonna krókaflamark, að mestu í þorski. Fram kemur að með kaupunum er Þórsberg að setja styrkari stoðir undir starfsemi sína.

Við þessi viðskipti myndast ekki söluhagnaður eða sölutap hjá Brimi hf. Samningurinn er gerður með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila.