Gengið hefur verið frá sölu á íslenska útgáfufyrirtækinu Öldu Music til Universal Music /InGrooves, stærsta tónlistarfyrirtækis heims. Þetta kemur fram í tilkynningu. Universal Music/InGrooves segir kaupin til marks um mikilvægi íslenskrar tónlistar á alþjóðavísu og hyggst samsteypan fjárfesta í aukinni útgáfu íslenskra listamanna, bæði innanlands og utan.

Markmið samrunans er að efla útgáfuna enn frekar og sækja fram með íslenska tónlistarútgáfu og kynningu á nýrri tónlist, hér á landi sem erlendis, að því er kemur fram í tilkynningu. Dagleg starfsemi Öldu Music verður óbreytt og mun Sölvi Blöndal áfram stýra teymi starfsfólks útgáfunnar, auk þess að leiða samruna Öldu við Universal Music/InGrooves.

Alda Music var stofnuð árið 2016 af tónlistarmönnunum Sölva Blöndal og Ólafi Arnalds ásamt fleirum. Á þessum sex árum sem liðin eru, hefur fyrirtækinu vaxið fiskur um hrygg og er í dag með afar umfangsmikla starfsemi í útgáfu og dreifingu. Fyrirtækið hefur stóran og fjölbreyttan hóp kunnra listamanna á samningi hjá sér og hefur einnig lagt áherslu á að koma auga á og vinna með nýju og upprennandi tónlistarfólki.

Viðskiptablaðið fjallaði um fyrirtækið fyrir nokkru síðan, en eitt af markmiðum fyrirtækisins var að aðlaga íslenska tónlistarútgáfu að þeim breytingum sem hafa átt sér stað í miðlun afþreyingarefnis á undanförnum árum, með tilkomu streymisveitna á borð við Spotify og Apple Music.

Sölvi Blöndal, framkvæmdastjóri Öldu Music:

„Þetta er mikið tækifæri sem við erum að fá, að vinna með öflugasta tónlistarfyrirtæki heims. Íslensk tónlist hefur sjaldan átt fleiri og stærri farvegi til heimsins en ég get ekki hugsað mér betri samstarfsaðila en Universal Music/InGrooves í því verkefni að koma henni enn betur á framfæri. Við munum engu að síður halda áfram að gera okkar til að styðja við grasrótina, sem er og verður undirstaða nýsköpunar í íslenskri tónlist. Samtímis aukast möguleikar okkar til að markaðssetja bæði nýja og eldri tónlist til muna með aðkomu Universal - þau eru algjörlega leiðandi markaðs- og útgáfufyrirtæki á sviði tónlistar í heiminum í dag."

Frank Briegmann, stjórnarformaður og forstjóri Universal Music Central Europe & Deutsche Grammophon:

„Kaupin veita okkur tækifæri til að aðstoða íslenska listamenn og opna þeim aðgang að mikilli tækniþekkingu sem byggst hefur upp hjá Universal og Ingrooves. Þekking á sviði dreifingar og markaðssetningar getur gert gæfumuninn við að ná til nýrra áheyrenda og okkar innkoma verður vonandi lyftistöng fyrir allt það fólk sem starfar við tónlistarsköpun á Íslandi. Sölvi og hans samstarfsfólk hafa byggt upp farsælt útgáfufyrirtæki, Öldu, sem er með afar stóran hóp listamanna innan sinna vébanda og þessi kaup staðfesta þá ómældu trú sem við höfum á framtíð íslensku tónlistarsenunnar og möguleikum hennar til að láta enn frekar til sín taka á alþjóðlegum markaði."

Bob Roback, forstjóri Ingrooves dreifingarfyrirtækisins (í eigu Universal Music Group):

„Ísland hefur alltaf gegnt veigamiklu hlutverki í alþjóðlegu tónlistarsenunni. Á aðeins nokkrum árum hafa Sölvi og samstarfsfólk hans hjá Öldu Music byggt upp langöflugasta útgáfu- og dreifingarfyrirtæki landsins sem er með magnað úrval tónlistarfólks á sínum snærum. Við hlökkum til að vinna náið með þessum listamönnum og styðja um leið enn betur við grasrótarsenuna í tónlist á Íslandi. Við viljum eiga þátt í að skapa enn frekari tækifæri fyrir þetta tónlistarfólk, bæði innan Íslands og utan."