Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,75%.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að samkvæmt áætlun Hagstofu Íslands var hagvöxtur í fyrra 4% sem sé mjög nærri febrúarspá Seðlabankans. Horfur séu á að hagvöxtur verði enn meiri í ár eða 4,5%. Þetta er lítillega meiri vöxtur en spáð hafi verið í febrúar. Horfur fyrir næsta ár hafa einnig verið endurskoðaðar upp á við og er spáð 4% hagvexti í stað 3,4% í febrúar.

Verðbólga hefur haldist undir markmiðum þrátt fyrir launahækkanir

Nefndin segir að þrátt fyrir miklar launahækkanir og vaxandi framleiðsluspennu hafi verðbólga haldist undir markmiði um ríflega tveggja ára skeið. Í apríl mældist verðbólga 1,6%, svipuð og hún var fyrir ári. Að öðru óbreyttu er útlit fyrir að verðbólga verði undir markmiði fram eftir ári en aukist þegar innflutningsverðlag hættir að lækka. Samkvæmt spá Seðlabankans verður verðbólga 3% á lokafjórðungi ársins og 4½% á seinni hluta næsta árs en tekur síðan að þokast að markmiði fyrir tilstilli aðhaldssamrar peningastefnu. Þetta er heldur meiri verðbólga en spáð var í febrúar og skýrist munurinn af því að nú eru horfur á meiri vexti efnahagsumsvifa en þá var gert ráð fyrir.

Sterkari króna veitir svigrúm til að hækka vexti hægar

Í yfirlýsingunni kemur jafnframt fram að alþjóðleg verðlagsþróun og sterkari króna hafi veitt svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Að sama skapi séu vísbendingar um að peningastefnan hafi skapað verðbólguvæntingum traustari kjölfestu en áður og stuðlað að því að verðbólga hafi aukist minna en vænta mátti í kjölfar mikilla launahækkana. Það breyti hins vegar ekki því að miðað við spá Seðlabankans sé líklegt að auka þurfi aðhald peningastefnunnar frekar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings.