Íslandsstofa og Markaðsstofur landshlutanna hafa skrifað undir samninga um samvinnu við erlenda markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. Íslandsstofa og Markaðsstofurnar hafa unnið náið saman um árabil en nú hefur samstarfið verið formgert í samræmi við skilgreint hlutverk nýrra áfangastaðastofa sem Markaðsstofurnar sinna í sínum landshlutum. Samningurinn er til þriggja ára frá 2021 til og með 2023.

„Markaðssetning á áfangastaðnum Íslandi er samvinnuverkefni,“ segir Pétur Óskarsson , framkvæmdastjóri Íslandsstofu, í fréttatilkynningu.

„Ísland hefur undanfarin ár markað sér stöðu sem þekktur áfangastaður en það hefur ekki gerst af sjálfu sér og við erum í stöðugri samkeppni við aðra áfangastaði. Árið um kring vinnur fjöldi fólks að því að vekja athygli á Íslandi til að skapa viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengdum greinum í öllum landshlutum. Við erum lítil í stóra samhenginu en með því að leggja saman krafta okkar náum við slagkrafti og þessir samningar eru liður í að efla gott samstarf.“

Unnið er eftir stefnumótun stjórnvalda um að tryggja sjálfbæran vöxt ferðaþjónustu um allt land í krafti gæða og fagmennsku og að Ísland verði leiðandi í sjálfbærri þróun árið 2030. Meðal verkefna eru upplýsingamiðlun, samskipti við fjölmiðla og áhrifavalda, ráðgjöf um efni á vef og markaðsverkefni, uppbygging á sameiginlegum myndabanka og fleira.

„Markaðsstofur landshlutanna hafa unnið í þéttu samstarfi við Íslandsstofu síðastliðin ár með áherslu á erlenda markaðssetningu,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir , framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands fyrir hönd Markaðsstofanna. „Með því að formgera samstarfið og setja fjármagn í verkefnin verður slagkrafturinn aukinn til muna. Það er því mikið fagnaðarefni að stíga þetta skref og hlökkum við á Markaðsstofunum til að vinna sameiginlega að markaðssókn fyrir landið allt.“

Í tengslum við samningana heimsóttu fulltrúar Íslandsstofu alla landshlutana til að hitta hagsmunaaðila og kynna sér starfsemi og stöðu ferðaþjónustunnar. Markaðsstofurnar stilltu upp dagskrá og sáu um leiðsögn um sína landshluta.