Stjórn Samherja ákvað í dag að Þorsteinn Már Baldvinsson snúi aftur til starfa og verði forstjóri við hlið Björgólfs Jóhannssonar sem gegnir forstjórastarfi sínu áfram þar til annað verður ákveðið. Í nóvember 2019 ákvað Þorsteinn Már að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan fram færi rannsókn á starfsemi dótturfélaga Samherja í Namibíu.

Rannsóknin er sögð vel á veg komin á vef félagsins, en hún heyrir undir stjórn Samherja og er í höndum norsku lögmannsstofunnar Wikborg Rein. Stjórn Samherja fól Björgólfi Jóhannssyni að veita Wikborg Rein alla mögulega aðstoð í krafti stöðu sinnar sem starfandi forstjóri Samherja.

Félagið segir að vegna alkunnra ástðæðna, og vísa þar væntanlega ástandsins sem skapast hefur af útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur Covid 19 sjúktdómnum, séu nú fyrirtæki að loka eða draga úr starfsemi, starfsfólk sé án atvinnu og stjórnvöld grípa til stórtækari björgunaraðgerða en dæmi eru um. Fæðuöflun, matvælaframleiðsla, veiðar og vinnsla sjávarfangs muni skipta sköpum í núverandi ástandi.

„Þorsteinn Már Baldvinsson fær það verkefni að leiða aðgerðir Samherja vegna þeirra fáheyrðu aðstæðna sem eru uppi vegna útbreiðslu Covid-19,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja.

„Stjórn Samherja telur að sterk forysta með ítarlega þekkingu á mannauði, veiðum, vinnslu, sölu, flutningum og öllum öðrum rekstri samstæðunnar muni skipta sköpum í þeim aðgerðum sem ráðast þarf í. Þorsteinn Már hefur áður stýrt Samherja í gegnum íslenska bankahrunið og alþjóðlegu fjármálakreppuna með framúrskarandi árangri. Stjórn Samherja telur því að enginn sé betur í stakk búinn að takast á við núverandi aðstæður.“

Félagið segir á vef sínum að rannsókn á starfseminni í Namibíu muni halda áfram óháð breytingum á yfirstjórn samstæðunnar. Wikborg Rein mun áfram heyra beint undir stjórn Samherja og Björgólfur Jóhannsson mun áfram veita lögmannsstofunni allar þær upplýsingar og þá aðstoð sem hún þarf.

Félagið segir jafnframt að þótt reikna megi með töfum á rannsókninni vegna þeirrar fáheyrðu stöðu sem er uppi er, sé enn stefnt að því að ljúka henni í vor. Þá verði niðurstöðurnar kynntar fyrir stjórn Samherja og þar til bærum stjórnvöldum strax í kjölfarið.

Félagið greindi jafnframt frá því 17. janúar að Samherji hyggist innleiða sérstakt kerfi fyrir stjórnarhætti og regluvörslu. Nýja kerfið verður hluti af stjórnun Samherja samstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfélaga. Sem forstjóri við hlið Þorsteins Más mun Björgólfur Jóhannsson áfram stýra innleiðingu kerfisins. Vinnu vegna þess miðar vel og er búist við að henni ljúki síðar á þessu ári.

Félagið segist jafnframt kappkosta um þessar myndir að halda skipum sínum til veiða. Þá mun framleiðsla í fiskvinnsluhúsum á Dalvík og Akureyri halda áfram að því marki sem sóttvarnareglur heimila. Reynt hafi verið eftir fremsta megni að halda öllum söluleiðum opnum, bæði hér á landi og erlendis, og allt starfsfólk félagsins taki þátt í því að því marki sem sóttvarnarreglur heimili.

Hér má lesa frekari fréttir um málefni Samherja í Namibíu:

Hér má sjá skoðanapistla um málefni Samherja í Namibíu: