Rafrænar evrur útgefnar af íslenska fjártæknifyrirtækinu Monerium á þremur ólíkum bálkakeðjum hafa skipt um hendur fyrir ígildi 9 milljarða króna á gengi dagsins í gær í yfir 28 þúsund færslum frá því að þær voru formlega kynntar til leiks síðasta sumar, þar af 2,7 milljarða síðastliðinn mánuð.

Alls eru nú um 7,9 milljónir rafevra – ígildi 1,2 milljarða króna – útistandandi í eigu 827 notenda.

„Á hálfu ári hefur brúttóveltan í útgáfu evruauðkennis Monerium þrefaldast úr milljarði króna upp í þrjá. Þessi hraði vöxtur skýrist af nokkrum þáttum, en við kynntum vöruna í raun og veru fyrst um mitt ár í fyrra,“ segir Sveinn Valfells, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Monerium.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 2.749 kr. á mánuði