Þegar litið er um öxl blasa við stórfenglegar breytingar á íslenskri samfélagsgerð á þeim rúmlega 30 árum sem liðin eru síðan Viðskiptablaðið hóf göngu sína. Á eftirhrunsárunum staldra vafalaust flestir við bóluna og bankahrunið í því samhengi, en menn skyldu ekki gleyma því að árin þar á undan höfðu ekki síður átt sér stað mögnuð vatnaskil. Er síga fór á seinni hluta níunda áratugarins leið Kalda stríðið undir lok, en það var ekki aðeins í Sovétríkjunum sálugu, sem menn fengu að kynnast perestrojku. Hér á Íslandi blésu ferskir vindar í efnahags- og atvinnulífi, þar sem margs konar höftum var aflétt, hið opinbera dró sig úr samkeppnisrekstri, losaði um eignir og dregið var úr margháttaðri ríkisforsjá, sem hafði mótað samfélagið allt um áratugaskeið.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 5.995 kr. á mánuði