Sem kunnugt er þá hefur undirbúningur skráningar Ísfélagsins í Vestmannaeyjum í Kauphöllina staðið yfir um nokkra hríð. Að öllu óbreyttu verða bréf félagsins tekin til viðskipta í Kauphöllinni fyrir áramót og verður þá Ísfélagið þriðja sjávarútvegsfyrirtækið á hlutabréfamarkaði. Fyrir á fleti eru Brim og Síldarvinnslan.