Bróðurpartur tekna knattspyrnudeilda liðanna sem léku í Bestu deild karla á síðasta ári fór í að greiða laun og tengdan kostnað. Þannig nam meðallaunakostnaður liðanna sem hlutfall af tekjum 63% á síðasta ári, en árið áður var meðaltalið 66%.