Dana Rún Hákonardóttir hefur verið ráðin til íslenska reiðhjólaframleiðandans Lauf Cycles þar sem hún mun gegna hlutverki forstöðumanns markaðs- og kynningarmála og sjá um uppbyggingu vörumerkisins á alþjóðamarkaði.

Hún er með B.A. gráðu í Music and Media Management frá London Metropolitan og M.Sc. gráðu í Markaðsfræðum og Alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.

Dana kemur til Lauf Cycles með víðtæka reynslu í markaðsmálum og viðskiptaþróun en hún starfaði síðast hjá nýsköpunarfyrirtækinu DTE, sem forstöðumaður markaðs- og kynningarmála.

„Ég er afar spennt fyrir þessu nýja hlutverki hjá Lauf Cycles. Fyrirtækið hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir nýstárlega hönnun og gæði. Það er frábært tækifæri að taka þátt í því að styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins”, segir Dana.

Hún hefur einnig starfað hjá Brandenburg auglýsingastofu, sá um markaðssetningu farsímaleiða og búnaðar hjá Símanum og einnig hjá Plain Vanilla Games, við þróun QuizUp.

„Reynsla og innsýn Dönu í markaðssetningu, viðburða- og vörumerkjastjórnun, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum mun styrkja Lauf til muna. Hún mun gegna lykilhlutverki í að efla sambönd við viðskiptavini okkar í Bandaríkjunum og áframhaldandi sókn á aðra markaði”, segir Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri og stofnandi Lauf Cycles.