Franska sjóðastýringafyrirtækið Ardian og Samkeppniseftirlitið (SKE) hafa undirritað sátt um kaup Ardian á Mílu af Símanum með skilyrðum. Þá hafa Síminn og Ardian hafa komist að samkomulagi um breytingar á kaupsamningnum sem felur í sér að heildarvirði Mílu í viðskiptunum lækki niður í 69,5 milljarða króna, að því er kemur fram í tilkynningu Símans.
Í upphaflega kaupsamningnum var kveðið á um að heildarvirði Mílu yrði 78 milljarðar króna. Eftir að Síminn og Ardian komust að samkomulagi um breytingar á samningnum í júlí, sem liður í sáttaviðræðnum við SKE, lækkaði kaupverðið um 5 milljarða króna, niður í 73 milljarða. Í ljósi skilyrða sem SKE setur lækkar kaupverðið aftur um 3,5 milljarða, niður í 69,5 milljarða króna.
Alls hefur kaupverðið því lækkað um 8,5 milljarða frá því að samningurinn var upphaflega kynntur í október 2021. Þá er áætlaður söluhagnaður Símans nú 38,3 milljarðar króna, að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna, en við upphaflega kaupsamninginn hafði Síminn áætlað að söluhagnaðurinn yrði rúmlega 46 milljarðar.
Síminn mun fá greiddar tæplega 33 milljarða króna í formi reiðufjár og 17,5 milljarða í formi skuldabréfs til þriggja ára á efndadegi, sem gert er ráð fyrir að verði í lok september 2022. Skuldabréfið er framseljanlegt og ber 4% vexti sem er óbreytt frá fyrra samkomulagi.
Heildsölusamningurinn styttur í 15 ár
Áhyggjur SKE hafa einkum stafað af heildsölusamningi á milli Mílu og Símans sem tekur gildi eftir að viðskiptunum lýkur. Í tilkynningu eftirlitsins segir að sem hluti af sáttinni hafa Ardian og Síminn gert verulegar breytingar á heildsölusamningnum, þar á meðal styttingu niður í 15 ár en upphaflega átti hann að ná til 20 ára.
Þá sé Míla einnig skuldbundin til að lúta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni og Síminn hefur undirritað yfirlýsingu þar sem fyrirtækið ábyrgist tiltekna þætti í starfsemi sinni. Nánar er greint frá breytingum á heildsölusamningnum í tilkynningu SKE.
„Með þessum skilyrðum er samkeppnishindrunum rutt úr vegi og frjór jarðvegur skapaður fyrir öfluga samkeppni á fjarskiptamarkaði – viðskiptavinum og neytendum til hagsbóta,“ segir SKE.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins:
„Samkeppni í uppbyggingu og rekstri innviða hér á landi hefur skilað Íslandi í fremstu röð á þessu sviði. Á þeim umbreytingatímum sem framundan eru mun það hafa úrslitaþýðingu fyrir samkeppnishæfni Íslands að stjórnvöld og atvinnulíf hlúi að samkeppni á þessu sviði.
Innkoma sjálfstæðs innviðafjárfestis inn á íslenskan markað og rof á eignatengslum Símans og Mílu er til þess fallið að treysta samkeppni ef vel er að málum staðið. Til þess að svo megi verða þurfa forsendur og skilmálar viðskiptanna að styðja við samkeppni. Sáttinni sem hér er kynnt er ætlað að tryggja það.“
Orri Hauksson, forstjóri Símans:
„Við hjá Símanum erum afskaplega ánægð með að söluferli Mílu skuli loks lokið. Það reyndist langvinnara en hægt var að sjá fyrir, en nú hefst nýr kafli í fjarskiptasögu Íslands. Síminn mun einbeita sér að því að veita viðskiptavinum sínum hágæða fjarskiptaþjónustu um land allt, en eftirláta öðrum fjárfestingar í innviðum. Ardian, nýr eigandi Mílu, sýndi þolgæði og framsýni í þessu erfiða ferli. Allur íslenskur almenningur má vænta mikils af Ardian og Mílu í uppbyggingu fjarskipta um land allt og njóta góðs af þessum viðskiptum, bæði sem neytendur og sem hinir endanlegu eigendur lífeyrissjóðanna, sem eru stærstu hluthafar Símans.“
Dr. Daniel von der Schulenburg, framkvæmdastjóri og yfirmaður Ardian Infrastructure fyrir Þýskaland, Benelux löndin og Norður-Evrópu:
„Við hjá Ardian erum ánægð með að hafa náð þessum mikilvæga áfanga. Við viljum þakka stjórnendum Símans og Mílu ásamt samkeppnisyfirvöldum fyrir þá miklu vinnu sem þessir aðilar hafa lagt á sig til að ná þessu saman. Míla er langtímafjárfesting fyrir Ardian og ætlum við okkur að veita Símanum og öllum öðrum viðskiptavinum Mílu fyrsta flokks þjónustu á sama tíma og við hröðum uppbyggingu fjarskiptainnviða á Íslandi.“
Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu:
„Það er okkur, starfsfólki Mílu, mikið gleðiefni að þessum kafla sé loks að ljúka og nýr spennandi kafli í sögu Mílu að taka við. Með þennan öfluga bakhjarl sem Ardian er verður Míla sem sjálfstætt félag enn betur í stakk búin að byggja upp og efla fjarskiptainnviði á Íslandi. Nú munum við setja enn meiri kraft í uppbyggingu ljósleiðaratenginga og 5G farsímanets á landinu í samræmi við stefnu nýrra eigenda sem vilja flýta þessari mikilvægu uppbyggingu. Endurnýjun og frekari útvíkkun stofnfjarskipta og stofnleiða er enn eitt mikilvægt verkefni sem nú er í gangi og er lykilatriði fyrir öryggi fjarskipta og um leið notenda. Samanlögð þekking Mílu og Ardian mun þar skipta miklu máli og tryggja trausta framkvæmd þessa mikilvæga innviðaverkefnis.“