Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 17 milljónir króna eftir skatta á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 321 milljóna hagnað á sama tímabili í fyrra.

Afkoma félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins var neikvæð um 322 milljónir króna eftir skatta. Sýn birti uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag.

Rekstrartekjur Sýnar á þriðja ársfjórðungi drógust saman um 2% milli ára og námu 5.265 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður (EBIT) félagsins var 199 milljónir á fjórðungnum, samanborið við 579 milljónir á þriðja ársfjórðungi 2023.

„Skýrist þessi munur helst af minni tekjum af IoT þjónustu, hærra kostnaðarverði og hærri afskriftum sýningarrétta sem voru lægri á sama tíma í fyrra vegna endursamninga við birgja,“ segir í uppgjörstilkynningu Sýnar.

Sýn lauk þann 1. október sl. sölu á erlendri starfsemi dótturfélagsins Endor til Hexatronic Group. Í uppgjöri Sýnar kemur fram að viðmiðunardagur viðskiptanna hafi verið þann 20. september og að hluti kaupverðsins hafi þegar verið greiddur. Hagnaður af sölu starfseminnar nam 160 milljónum króna.

Við neðri mörk afkomuspár

Félagið segir að árangurinn á þriðja ársfjórðungi sé í samræmi við forsendur afkomuspár fyrir árið 2024 sem félagið birti í byrjun júlí, sem gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT), án nokkurra leiðréttinga vegna einskiptisliða, verði á bilinu 900-1.100 milljónir króna. Hins vegar verði niðurstaðan nær neðri mörkum spárinnar.

„Ástæður þess eru einna helst ákvarðanir sem teknar voru á fjórðungnum hvað varðar minnkandi eignfærslu launa og upphreinsun á eldri farsímalager í eigu félagsins.”

Þá segist félagið á réttri leið með að ná skilvirknimarkmiðum sínum um að skila 6-800 milljónum króna í rekstrarbata á ársgrundvelli á síðari hluta ársins 2024. Rekstrarbatinn ætti að skila félaginu 1.500-1.700 milljónum króna í rekstrarhagnað (EBIT) á árinu 2025 án tillits til annara verkefna sem koma inn á því ári, að því er segir í tilkynningunni.

„Eins og áður hefur komið fram hefur rekstrarniðurstaða félagsins verið lituð af of mikilli yfirbyggingu þar sem sameiningar fyrri ára hafa ekki verið að fullu innleiddar inn í rekstur félagsins. Nýir stjórnendur komu inn á þessu ári og höfum við notað tímann vel í að kynnast félaginu en ekki síður tekið metnaðarfullar ákvarðanir til framtíðar,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.

„Ég er þess fullviss um að ný áhersla okkar og átak í djúpri samþættingu og einföldun innan Sýnar muni leggja grunninn að sjálfbærum langtíma hagnaði og vexti. Við höfum unnið markvisst að mótun nýrrar stefnu Sýnar síðustu mánuði þar sem helstu drifkraftar eru skilvirkni, vöxtur og samvinna og lítum björtum augum til framtíðar.“

Félagið mun fjalla nánar yfir horfur í rekstri félagsins á markaðsdegi sem haldinn verður á morgun.