Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður flokksins, ávörpuðu á sjötta hundrað manns á kosningahátíð Sjálfstæðisflokksins í Fjölbrautaskóla Garðabæjar í gær.

„Þessar kosningar eru rosalega stórar og mikilvægar. Við erum eftir tíu daga að fara að fjárfesta í hvernig Ísland við viljum sjá næstu fjögur árin. Það er til mikils að vinna,“ sagði Þórdís Kolbrún í opnunarávarpi sínu. Sagði hún hugmyndafræðilegar línur í þessum kosningum skýrar.

„Valkosturinn að við séum með þrotað Reykjavíkurmódel þar sem að það bíó er fært yfir á landsmálin er eitthvað sem enginn hér vill sjá og vonandi ekki margir þarna úti‏.“

Sagði hún ljóst að það verði allt annars háttar ríkisstjórn í landinu, vonandi borgaralega sinnuð sem gangi í takt.

Ekki þörf á að kíkja aftur í ESB-pakkann

Í ræðu sinni sagði Bjarni að greiningar hérlendis sýni að efnahagsbatinn á Íslandi hafi verið í algjörum sérflokki.

„Við höfum séð meiri fjárfestingu heldur en við gerðum ráð fyrir, hún hefur tekið verulega við sér. Við höfum séð kaupmátt vaxa á Íslandi 11 ár í röð. Þessu er ekki fyrir að fara í löndunum í kringum okkur og inn á evrusvæðinu. Við erum búin að endurheimta þjóðarframleiðsluna eins og við spáðum henni inn í framtíðina áður en Covid skall á. Það mikla áfall hefur ekki stoppað okkur vegna þess að við fengum viðspyrnu. Menn eru enn að reyna að endurheimta þjóðarframleiðsluna í löndunum í kringum okkur,“ sagði Bjarni.

Ræddi hann hugmyndir annarra flokka um að taka upp viðræður við ESB og sagði m.a.:

„Það er aftur farið að láta skína í að það geti verið góð hugmynd að dusta rykið af Evrópustefnunni og stefna á viðræður við Evrópusambandið. Hvað ætli sú stefna eigi að heita: „Kíkjum í pakkann aftur“.

Það er búið að skoða þetta ár. Það hefur engin EFTA þjóð verið jafn lengi í viðræðum við Evrópusambandið eins og Ísland reyndi að vera. Allar aðrar þjóðir voru búnar að klára það mál. Það er tómt mál að tala um einhverjar atkvæðagreiðslur ef það er ekki skýr meirihluti á þinginu fyrir inngöngu í Evrópusambandið.“

Sagði hann að þeir sem ekki ætli að eyða tímanum í það þurfi að fá sterka kosningu, fjölda þingmanna og skýra rödd í þinginu.

„Við vitum alveg hvað ESB-pakkinn hefur að geyma. Það þarf ekki að kíkja í hann aftur. Þar eru lægri laun, meira atvinnuleysi, minni nýsköpun, færri tækifæri og við skulum ekki leyfa þeim að draga upp einhverja nýja mynd af þessu eins og það sé eitthvað sem við vitum ekki hvað hefur að geyma. Einhvers konar Evrópusambandið.ai útfærslu sem hvergi er til,“ sagði Bjarni.

Frá fundinum í gær.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vinstri menn muni aldrei skilja

Bjarni fór um víðan völl og ræddi m.a. um útvíkkun og framlengingu séreignarúrræðisins sem hafi að hans sögn hjálpað tugum þúsunda íslenskra fjölskyldna að eignast eigið heimili. Auk þess talaði hann fyrir afnámi stimpilgjalda sem væri úreltur skattur og þröskuldur inn á húsnæðismarkað.

Sagði hann sjálfstæðismenn ætla að halda áfram að létta álögur upp eftir æviskeiðinu, hækka frítekjumark ellilífeyris vegna atvinnutekna, gera starfslok sveigjanlegri, koma almennilegri hreyfingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila í samstarfi við þá sem kunna best. Þá nefndi hann að lækka erfðafjárskatt um helming og fjórföldun frítekjumarka í 20 milljónir.

„Þegar þessi mál eru rædd spyrja sig sumir; hvernig er hægt að bæta áfram afkomu ríkisins og lækka skatta? Svarið blasir við, þó vinstrimenn skilji það aldrei og muni aldrei skilja; Lægri sköttum fylgja meiri umsvif, fleiri tækifæri, fjölbreyttari atvinnustarfsemi og þar með meiri skatttekjur.“

Þá nefndi Bjarni mikilvægi þess að treysta landamærin enn frekar og sagði það ekki síst ástæðuna fyrir því að hann hafi slitið stjórnarsamstarfi.

Vaxtamálin alvöru stjórnmál

Bjarni ræddi vaxtalækkun Seðlabankans í gær og sagði gærdaginn góðan dag. Hann sagði vaxtalækkunina í gær þýða fyrir heimili með 40 milljón króna óverðtryggt lán um 190 þúsund minni greiðslubyrði á ári. Þegar vextir hafi lækkað um 1,5% í viðbót þýði það 560 þúsund króna minni greiðslubyrði og svo koll af kolli.

„Þegar verkefninu er lokið sem við höfum setti sjónir á getum við gert ráð fyrir því að greiðslubyrðin hafi minnkað um á aðra milljón,“ sagði Bjarni.

Sagði hann þetta alvöru mál, alvöru stjórnmál. Þá sagði hann stjórnmálaumræðuna stundum hverfast um hluti sem á endanum skipti ekki nokkru máli.

Nálgast má upptöku af fundinum hér.