Þegar flestir heyra orðið mafía hugsa þeir eflaust til ítalskra glæpagengja 20. aldarinnar í stórborgum Bandaríkjanna eða miskunnarlausra leigumorðingja sem tengjast rússnesku mafíunni eða hinni alræmdu Yakuza-mafíu í Japan.
Ný þáttaröð hefur hins vegar litið dagsins ljós sem einblínir á júgóslavísk glæpagengi sem störfuðu á Norðurlöndunum á tíunda áratugnum í kjölfar stríðsins á Balkanskaganum.
Mafia er ný sex þátta sería eftir leikstjórana Mani Maserrat og Tomas Jonsgarden sem er sýnd á Viaplay. WSJ hefur tekið þættina fyrir en þeir segja frá Serbanum Radovan Jakovic sem ólst upp á munaðarleysingjahæli í Stokkhólmi og skoðar þann möguleika að flytja inn ólöglegar sígarettur.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Gunn Thörngren fer að gruna að fjármagn frá smygluðu tóbaki sé hinn raunverulegi drifkraftur á bak við glæpagengi Júgóslava og reynir að fá Jakovic til að binda enda á það.
Mafíuforinginn í Stokkhólmi er hins vegar Króati og þegar löndin á Balkansskaganum byrja að herja hvor á aðra flækjast málin fyrir glæpamennina í Svíþjóð. Ákvörðun Jakovic til að vinna með Albönum á meðan grimmdarverk eru framin í Kósóvó reynast til að mynda banvæn mistök.