„Bílaáhuginn kviknaði mjög snemma. Ég var mjög ungur, líklega 5 eða 6 ára þegar ég var farinn að safna módelum af klassískum bílum, límdi þá saman og málaði eða dundaði mér við að betrumbæta frumútgáfuna. Ég valdi leður á sæti og mælaborðið, teppi á gólfin sem ég fann í saumaskápnum hennar mömmu. Ég lék mér mikið með bíla og hafði mikinn áhuga á að skapa allt umhverfið líka, búa til vegi, jarðgögn og fleira. Vegina lagði ég með því að hræra steypu saman, velja vandlega stað fyrir samgöngurnar í klettum og hólum til að bílarnir gætu ekið eftir og auðvtað voru vegirnir með vegamálningu og göngubrautum, ljósum, skiltum og öllu tilheyrandi. Þessir framkvæmdaleikir gátu tekið heilt sumar að klárast, jafnvel nokkur ár, svo bílaáhuginn hefur alltaf fylgt mér ásamt íþróttaáhuganum. Sem barn átti ég einnig Scania Vabis vörubíl og smíðaði mér auðvitað nokkra trébíla, jeppa með beygjum og fjöðrun úr gömlum slöngum. Einnig smíðaði ég gripaflutningabíla sem voru í stanslausri vinnu við að sækja gripi, horn, leggi, skeljar í sláturhúsið og setja upp girðingar. Ég var alltaf að hreyfa mig með eða leika mér með bíla sem barn. Bílaáhuginn hefur verið ódrepandi allar götur síðan,“ segir Magnús.
„Áhuginn minn hefur samt alltaf verið sérstaklega á hönnunina á bílum. Mér fannst tímabilið 1950-1970 vera flottasta tímabilið í hönnun bíla. Þá voru hönnuðir fremstir í flokki sem fengu að hanna bílana, ekki verkfræðingar, enda voru þessir bílar miklu fallegri en í dag. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hvernig línur, litir, innréttingar og mælaborð voru valin og hönnuð og einnig hönnunin á húddunum. Það er mjög gaman að skoða hvernig sú hönnun hefur þróast. Ég hef alltaf pælt mikið í hvernig sætin og leðrið er valið og útfært og saumarnir á þeim, einnig hönnunin á mælaborðinu og val á stýri. Ég hef minna verið að spá í vélina eða aflið þannig séð. En auðvitað er gaman að bílarnir hafi gott afl og geta ekið greitt þegar við á og aðstæður leyfa.“

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði