Magnús Scheving, sem er í ítarlegu viðtali í nýútkomnu sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar, segist hafa lent í mörgum skemmtilegum og eftirminnilegum atvikum á leið sinni á Þingvelli.

„Við eigum sumarhús þar sem tók mig fjögur ár að smíða á milli stríða og á ferðum þangað, sérstaklega á veturna, hef ég oft orðið vitni að því að túristar eru að aka út af veginum. Það hefur stundum verið stórhættulegt að aka þarna um en ég hef ekki tölu á hversu mörgum ég hef hjálpað,“ segir hann og rifjar upp er hann kom breskum ferðamönnum sem höfðu lent í hremmingum í veturfærðinni til bjargar.

„Einu sinni var  breskt par sem var nýlent á Íslandi. Þau höfðu gift sig um morguninn og flogið til Íslands og ætluðu að gista á Ion hótelinu. Þau leigðu sér bíl, líklega að flýta sér á hótelið, þetta var nú einu sinni brúðkaupsnóttin framundan. En eiginmaðurinn hafði enga reynslu að aka í snjó, og það snjóaði gríðarlega, og lenda  svo í íslensku vonskuveðri með öllu tilheyrandi  á heiðinni. Þessi ökuferð þeirra endaði með því að bíllinn valt á hliðina utanvegar. Ég kom fyrstur að, ekki mikil umferð og næstum ófært. Ég stoppaði og stökk upp á hliðina á bílnum þeirra og opnaði  hurðina. Standandi bjargvætturinn allur í snjó reyndi að róa þau þar sem þau hengu bæði enn í beltunum ósködduð sem betur fer. Þau voru búin að hanga ansi lengi en ég náði að losa þau og bauðst til þess að keyra þau á hótelið sem ég og gerði. Ég lét draga bílinn upp og reddaði þeim svo fari daginn eftir á flugvöllinn svo þau þyrftu ekki að hugsa um þetta á brúkaupsnóttina.

Seinna fékk ég sendingu  gjöf frá þeim og þau sögðu hafa frétt að þeim hafi verið bjargað af íþróttaálfinum á Íslandi, Sportacus eins og hann heitir á ensku. „Einhver er í vanda“ eins og hann segir áður en hann bjargar einhverjum í sjónvarpsþáttunum um Latabæ. Þau trúðu þessu ekki fyrst en svo var þetta saga sem þau sögðu börnunum sínum sem þekktu vel til Sportacus og þau sögðu að það væri mest kúl að vera bjargað af Sportacus af öllum á Íslandi sem þau og allir þeirra vinir þekktu. Þetta var hápunktur ferðarinnar en  ekki brúðkaupsnóttin sjálf sagði eiginkonan hlæjandi,“ segir Magnús og hlær þegar hann rifjar þetta upp.

Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar. Áskrifendur geta lesið viðtalið við Magnús í heild hér.