Kópavogsbakki 10 var dýrasta einbýlishús sem selt var í Kópavogi á síðasta ári. Kaupverð hússins, sem er 284 fermetrar, nam 260 milljónum króna. Fermetraverð nam því 916 þúsund krónum.

Þetta var jafnframt hæsta fermetraverð sem greitt var fyrir einbýlishús í sveitarfélaginu.

Næst dýrasta einbýlishúsið sem seldist á síðasta ári í bæjarfélaginu var 360 fermetra hús í Aflakór 20. Húsið seldist á 240 milljónir króna og nam fermetraverð því 666 þúsund krónum.

Hér að neðan má sjá lista yfir fimm dýrustu einbýlishús sem seld voru í Kópavogi í fyrra.

Dýrustu einbýlishús sem seldust í Kópavogi árið 2022

Heimilisfang Verð (milljónir kr.) Stærð Fermetraverð (þúsundir kr.)
Kópavogsbakki 10 260 284 916
Aflakór 20 240 360 666
Huldubraut 28 215 305 705
Aflakór 10 210 286 735
Dalaþing 25 207 253 816
Heimild: HMS

Umfjöllunina má lesa í heild í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.