Fyrsti rafknúni Hummer EV jeppinn er kominn til landsins. Það er Jóhann Lövdal, eigandi Bílamarkaðarins í Kópavogi, sem hefur flutt bílinn hingað til lands.
Bíllinn kemur innfluttur frá Bandaríkjunum. „Ég sá hann úti í Bandaríkjunum í febrúar og kolféll fyrir honum. Ég var þá staðráðinn í að flytja hann til Íslands. Bíllinn er með 5 ára ábyrgð. Hann er á 22 tommu felgum og 35 tommu orginal dekkjum. Þetta er heldur betur stór og stæðilegur jeppi en samt mjög lipur í aksturseiginleikum,” segir Jóhann.
Hummerinn er nýkominn í sölu og kostar 22,9 milljónir króna hjá Bílamarkaðnum að sögn Jóhanns. „Ég á ekki von á öðru en að bíllinn muni fá mikla athygli. Hann vekur mikla eftirtekt hvar sem hann fer,” segir hann.

Í fyrsta sinn hreinn rafbíll
Bílaframleiðandinn GMC kynnti nýjan Hummer EV um mitt síðasta ár. Hinn nýi Hummer hefur breyst umtalsvert í útli bæði að innan og utan en mesta breytingin er að Hummer nú orðinn hreinn rafbíll.
Gerðin sem Jóhann flutti hingað til lands er Hummer EV 2x en bíllinn er með tveimur rafmótorum og uppgefin drægni á jeppanum er í kringum 506 km samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda. Rafmótorarnir skila jeppanum 570 hestöflum. Bíllinn er með fjórhjóladrifi og getur dregið að hámarki 3,4 tonn. Hummer hefur alltaf verið þekktur fyrir magnaða torfærueiginleika og nýi bíllinn gefur ekkert eftir í þeim efnum.
Meðal staðalbúnaður í Hummer EV eru ökumanns aðstoðarkerfi, sem kallast á ensku Super Cruise, undirvagnsmyndavélar, 35 tommu dekk og infinity þak. Hann kemur með 13,4 tommu margmiðlunarskjá sem býður upp á ýmsa skemmtilega eiginleika. Í boði eru bæði Apple CarPlay og Android Auto. Nýr Hummer kemur með 800 volta hraðhleðslu eða allt að 300 kW í jeppanum en 350 kW í pallbílnum. Þessi hraðhleðsla gildir þó í báðum týpum.