Fyrsti jeppinn, sem var framleiddur að frumkvæði breska auðmannsins Sir Jim Ratcliffe, var afhentur á Íslandi 2023. Ineos, fyrirtæki Ratcliffe, framleiðir jeppana.

„Þetta hefur gengið mjög vel hjá okkur og við erum afar ánægðir að vera búnir að afhenda 23 ævintýrajeppa. Kaupendur eru bæði einstaklingar og ferðaþjónustuaðilar,“ segir Einar Sverrir Sigurðarson, einn eigenda umboðsins.

„Við breytum flestum jeppunum sjálfir og setjum þá á 33 til 44 tommu dekk. Við vorum að breyta einum Grenadier jeppa fyrir björgunarsveit og setja undir hann 38 tommu dekk. Sá jeppi er mjög voldugur að sjá.“

Að sögn Einars kostar Grenadier jeppinn frá 20 milljónum upp í 23 miljónir frá verskmiðjunni sem staðsett er í Hambach í Frakklandi. Grenadier jeppinn er í boði með sex strokka bensín- eða dísilvélum frá BMW. Í jeppunum er ZF átta gíra sjálfskipting sem er í mörgum bílum BMW. Þá er sídrif millikassinn með háu og lágu drifi. Bensínvélin skilar 281 hestafli og 450 NM togi en dísilvélin skilar 245 hestöflum og 550 Nm togi.

Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.

Grenadier er stór og stæðilegur jeppi. Hér er hann myndaður við Kirkjufell.
© Aðsend mynd (AÐSEND)