Kínverska nýárið hefur verið haldið hátíðlegt um allan heim í þessari viku, þá bæði af íbúum í Asíu og íbúum á Vesturlöndunum sem vilja betur kynnast þessum litríka menningarheimi og er þá tilvalið tækifæri til að borða kínverskan mat.
Einn vinsælasti réttur Kínverja kemur frá höfuðborginni Peking en sá réttur kallast einfaldlega Peking Önd. Rétturinn á sér rætur að rekja til Ming-keisaraveldisins (1368-1644) og var vinsæll meðal keisara landsins.
Hin safaríka Peking Önd er vandlega röðuð í einu lagi á disk og býður upp á bæði gómsætt kjöt og stökka húð. Með kjötinu fylgir hoisin-sósa og grænmeti sem er blandað saman inn í heita pönnuköku.
Það er hins vegar ágætt að spyrja hvað væri gott að skola þessum gómsæta rétti niður með, enda skála Kínverjar fyrir gæfu og velmegun á nýju ári.
Burgundian Pinot Noir, Syrah, Rósakampavín eða Chardonnay koma öll til greina en þau gefa gott jafnvægi þegar snætt er á hinu feita kjöti. Sumir sérfræðingar segja hins vegar að Spatlese Reisling gæti verið betri kostur þar sem sýran parar betur við sykur hoisin-sósunnar.