Ratcliffe, mikill aðdáandi Defender og útivistar, velti upp möguleikanum á hvort hægt væri að kaupa réttinn til að halda framleiðslu áfram. Þar og þá kviknaði hugmyndin sem síðar varð að Grenadier.
Viðræður við Land Rover
Fyrsta skref Ineos var ekki að hanna nýjan bíl, heldur að ræða við Jaguar Land Rover um möguleikann á að kaupa bæði framleiðslurétt og hönnun gamla Defender. Þeir vildu kaupa teikningar, verkfæri og leyfi til að halda áfram að framleiða hann óbreyttan. Land Rover hafnaði þeim viðræðum alfarið.
Fyrirtækið hafði þegar fært sig yfir í nýja kynslóð lúxus-útgáfu Defender, sem hafði lítinn skyldleika við þann gamla, en þó hafði það engan áhuga á að leyfa öðrum að halda upprunalegu hönnuninni á lífi.
Eftir þá neitun ákváð Ratcliffe að búa til sinn eigin bíl frá grunni – bíl sem tæki Defender áfram í anda, en væri laus við öll tengsl við Jaguar Land Rover.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði