Mikill óróleiki hvílir nú yfir eigendum og starfsmönnum vínekra í Kaliforníu vegna innflytjendastefnu Donalds Trumps. Kalifornía er eitt stærsta vínframleiðslusvæði heims og sér fyrir rúmlega 80% af allri vínframleiðslu í Bandaríkjunum.
Á vef Decanter segir einnig að rúmlega 70% af öllum landbúnaðarstarfsmönnum séu innflytjendur og af þeim eru tæplega 45% ólöglegir innflytjendur.
Vínræktunartímabilið er nú í fullum gangi og er því mikil þörf á starfsfólki til að hafa umsjón með þrúgum og komandi uppskeru. Sumarið hefur einnig verið annasamur handtökutími hjá innflytjendastofnun Bandaríkjanna, ICE, meðal annars á landbúnaðarsvæðum.
Sam Coturri, eigandi víngerðarinnar Sixteen 600 í Sonoma-sýslu í Kaliforníu, segir að uppskerutímabilið sé sýnilegasti og fréttnæmasti tíminn til að framkvæma þessar handtökur. Hann segir að aðgerðirnar séu þó ófyrirséðar og óútreiknanlegar.
„Sannleikurinn er sá að við erum búin að vera að tala um þetta síðan eftir kosningar. Við höfum haldið röð æfinga með yfirstjórn vínekrunnar og fjallað um hvað gæti mögulega gerst á fundum.“
Hann segir að starfsmenn hafi einnig æft sig í að greina á milli lögmætra og ólögmætra handtökuskipana en ICE er þekkt fyrir að mæta með lögmæt skjöl en eru þó ekki alltaf undirrituð af dómara og eru því ógild.
Önnur vínekra í Sonoma-sýslu hefur einnig unnið náið með lögfræðingum við að innleiða fyrirbyggjandi áætlanir til að vernda starfsfólk sitt. Ein ráðstöfun er að merkja vínekrusvæðið með sýnilegum hætti og gefa til kynna að um sé að ræða einkalóð.
Eigendur segja þetta vera mikilvægt skref þar sem fulltrúar frá ICE hafa ekki heimild til að fara inn á einkalóðir án þess að vera með undirritaða handtökuskipun.
„Við viljum skapa öruggt umhverfi fyrir starfsfólk okkar. Við viljum ekki að neinn haldi að hann geti lent í því að vera handtekinn á okkar svæði. Fólk er í hættu og okkar forgangsverkefni er að tryggja öruggt vinnuumhverfi svo við getum einbeitt okkur að því að búa til gott vín.“