Líkt og nafnið gefur til kynna er bíllinn fjórhjóladrifinn. Hann er með tvo rafmótora, einn við hvorn öxul, sem skila samanlagt 387 hestöflum. Bíllinn býður upp á rafstýrða loftfjöðrun, mismunandi akstursstillingar og nýjasta öryggis- og aðstoðarkerfi Audi.
Audi Q6 e-tron er í flokki lúxusmilliflokksbíla með lengd upp á 4771 mm, breidd 1939 mm og hæð 1648 mm. Bíllinn býður upp á mikið rými, þægindi og notagildi. Farangursrýmið er 526 l og stækkanlegt upp í 1529 lítra með aftursætin felld niður. Þá er geymslupláss undir húddinu sem gefur 64 lítra til viðbótar sem er tilvalið fyrir smærri töskur.
Þægindi sem skapa ró
Það sem gerir aksturinn í Audi Q6 e-tron sérstaklega ánægjulegan er loftfjöðrunin sem ásamt rafstýrðu undirvagnskerfinu vinna saman að því að halda bílnum stöðugum og líkt og bíllinn svífi yfir veginn; það er varla að maður finni fyrir holum eða ójöfnum. Loftfjöðrunin getur einnig hækkað veghæðina í utanvegar stillingunni upp í allt að 21 cm.
Innanrýmið er líka hannað með þægindi ökumanns og farþega í huga. Sætin í S línunni sem reynsluekinn var eru sportleg með Dinamica leður áklæði með tíglamynstri og eru þau stillanleg með fjölbreyttum hætti. Til að auka á þægindin er nudd í framsætunum. Hönnun mælaborðsins er einföld og flott. Ökumannsskjárinn og snertiskjárinn í miðjunni mynda eina heild og auk þess er farþega skjár sem gerir kleift að sjá leiðsögn eða stjórna afþreyingu án þess að trufla ökumanninn. Skjárinn snýr að farþeganum og dregur úr ljósi sem gæti truflað við akstur. Stýrið í S-line útgáfunni er flatbotna sport aðgerðarstýri.

Audi Q6 e-tron S line er líka mjög hljóðlátur og vel einangraður og vind suð og hljóð frá veginum eru hverfandi. Þetta gerir innanrýmið sérstaklega notalegt; tilfinningin er sú að þegar þú sest við stýrið er engin þörf á að flýta sér.
Sportlegur með nægan kraft
Audi Q6 e-tron S line er bíll sem hannaður er fyrir fólk sem nýtur þess að keyra. Krafturinn er nægur og er hann aðeins 5,9 sek í hundraðið og hámarkshraðinn er 210 km/klst. Hins vegar var löngunin alls ekki fyrir hraðakstur í þessum bíl, það er eins og óþarfi sé að gefa í og nóg að vita að krafturinn er til staðar þegar á þarf. S-line útlitspakkinn gerir bílinn svo enn sportlegri með 21” álfelgum, svörtum útlitspakka sem og S-line innréttingu.

Þá er öryggiskerfið í Audi Q6 e-tron sérstaklega gott og les hann m.a. beygjur, vegamót og hringtorg og lækkar hraða bílsins í samræmi við það sjálfkrafa. Bíllinn er auk þess með 360° myndavél, nálgunarvara að framan og aftan, blindpunktavara og mörgu fleira.
Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér.