Nýr smart #5 verður frumsýndur á laugardaginn kemur í bílaumboði Öskju að Krókhálsi 11 en um er að ræða stærsta og fjölhæfasta smart-bíl til þessa. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og vel búinn fyrir íslenskar aðstæður.
Bíllinn bíður upp á allt að 540 km drægni, 800V hraðhleðslu og kemur í þremur útfærslum: Pulse, Summit Edition og BRABUS.
„Eftir góðar viðtökur á smart #1 og #3, bætist #5 nú við sem fyrsti meðalstóri sportjeppinn. Hann býður upp á meira rými, fjölhæfni og háþróaðri tækni en fyrri bílar frá smart. Nýr smart #5 byggir á 800 volta grunnkerfi sem tryggir lengri drægni og afar hraða hleðslu,“ segir í tilkynningu frá Öskju.
Bíllin býður upp á gott pláss en hann er með 2.900 mm hjólhaf og 4.695 mm heildarlengd. Í bílnum eru 34 hirslur, 72 lítra upplýst geymslurými að framan (e. frunk) og allt að 1.530 lítra farangursrými að aftan.
Nýr smart #5 er jafnframt hannaður til að bregðast við óvæntum aðstæðum. Bíllinn er búinn loftpúðum sem vernda farþega frá hliðum og milli sæta, auk innbyggðra öryggisbelta.