Toyota Proace og Proace City hafa verið vinsælir enda fjölhæfir sendibílar sem henta vel til margvíslegrar atvinnustarfsemi. Þeír koma nú báðir uppfærðir sem hreinir raf bílar, en eru einnig í boði með bensín- og dísilvélum.

Báðir bílarnir eru nú með enn meiri tækni og búnaði en áður. Við tökum sérstaklega út rafmagnsútfærslurnar hér enda var lögð mikil áhersla á þá í Haag. Proace er í millistærðarflokki og hefur verið vinsæll um árabil enda öflugur og fjölhæfur sendibíll sem býður upp á mikla burðargetu. Hægt er að velja á milli tveggja yfirbygginga og tveggja lengda.

Alls 350 km drægni Proace er með öflugan 75 kW rafmótor sem skilar 136 hestöflum. Drægnin er alls 350 km samkvæmt WLTP staðli.

Bíllinn er með nokkrum akstursstillingum og hægt er að sníða aksturinn eftir höfði ökumanns. Power stillingin er hugsuð fyrir tafarlausa hröðun, Normal stillingin er fyrir blandaðan hversdagslegan akstur og Ulta Efficent Eco til að hámarka drægnina í bílnum. Verðið á Proace í rafmagnsútfærslu er 7.590.000 kr.

Innanrýmið er laglegt í Proace City. Stór TFT upplýsingaskjárinn er áberandi.

Proace City knár þótt hann sé smár

Proace City er nettur og lipur sendibíll og sá minnsti í atvinnubílalínu Toyota. Margur er knár þótt hann sé smár segir máltækið og það á sannarlega vel við um Proace City. Þessi netti sendibíll dregur alls 289 km á rafmagninu samkvæmt WLTP staðli. Bíllinn er hannaður fyrir borgarumferðina og hann getur skotist um þröngar götur og lagt í þröng stæði.

Þetta er því afar hagkvæmur sendibíll með fjölbreytta notkunarmöguleika. Hægt er að velja á milli þriggja yfirbygginga og tveggja lengda. Proace City kemur í tveimur lengdum, 4,4 metrum og 4,7 metrum með 1,8 metra eða 2,2 m löngu farmrými. Hann getur borið allt að 1 tonn og dregið 1,5 tonn og hægt er að koma fyrir tveimur euro brettum í farmrýmið.

Proace City getur borið allt að 1 tonn og dregið 1,5 tonn og hægt er að koma fyrir tveimur euro brettum í farmrýmið.

Allt að 3,4 m hleðslulengd og 4,3 rúmmetra hleðslurými

Proace City hefur fjölda eiginleika á borð við Smart Cargo sem gera sendibílnum kleift að annast allar þarfir fyrir atvinnurekstur í borgarumhverfi. Það skilar aukinni hleðslulengd og burðargetu. Í lengri útgáfunni, þ.e. með löngu hjólhafi, er allt að 3,4 m hleðslulengd og 4,3 rúmmetra hleðslurými.

Flutningsgetan er meiri en maður heldur þegar horft er á þennan netta sendibíl. Hægt er að nota renniskilrúm og niðurfellanlegan sætisbekk aftur í til að skipta hratt á milli farþegaflutninga og hleðslurýmis.

Nett skrifstofa á hjólum

Innanrýmið er laglegt og stór TFT upplýsingaskjárinn gefur ökumanni allar upplýsingar um aksturinn, hleðslu rafhlöðunnar og orkunotkun sem og afþreyingu þar sem snjalllausnir eru í fyrirrúmi. Boðið er uppá margmiðlunartengingar við Apple Carplay og Android Auto. Flatt gólf og sætisbekkur frammí bjóða upp á þægileg sæti fyrir þrjá.

Innfellda borðinu á niðurfellanlega miðsætinu er hægt að snúa annaðhvort að farþega eða ökumanni. Það er því hægt að gera bílinn að nettri skrifstofu á hjólum ef maður vill. Snjallar lausnir eru í loftinu og auka á gott geymsluplássið. Verðið á Toyota Proace City rafsendibíl er frá 5.360.000 kr.

Proace er sendibíll í millistærðarflokki. Drægnin er alls 350 km samkvæmt WLTP staðli.
Öll Proace sendibílalína Toyota var kynnt í Haag. Einnig var nýr Hilux á svæðinu.