Það var mikið um að vera í Nekkehal sýningarhöllinni í Mechelen í Belgíu nýverið en þangað var bílablaðamanni Viðskiptablaðsins boðið til að skoða nýjustu Toyota og Lexus bílana sem frumsýndir voru. Bílablaðamenn víðs vegar að úr heiminum voru þar samankomnir til að skoða herlegheitin.
Hæst ber líklega að nefna nýjan RAV4 en þessi sportjeppi hefur verið gríðarlega vinsæll á Íslandi undanfarin ár. RAV4 er í raun fyrsti jepplingurinn eða sportjeppinn hvort sem við viljum kalla þá. Hann sameinaði má segja fólksbíla- og jeppaeiginleika.
Á blaðamannafundi í Mechelen kom fram að um 2,5 milljónir RAV4 bíla hafa selst í Evrópu síðan bíllinn kom fyrst á markað árið 1994 og alls um 15 milljónir bíla á heimsvísu. Það er ekkert smáræði.
Þetta er sjötta kynslóð RAV4 sem heimsfrumsýndur var í Mechelen og um er að ræða nýjan bíl frá grunni. Hann er því mjög mikið breyttur frá fyrri kynslóð sem er einn mest seldi bíll Íslands síðustu sjö ár frá því sú kynslóð kom á markað.
Nýr RAV4 mun koma í tvinnog tengiltvinnútfærslum þegar hann kemur á markað á næsta ári. Hann verður einungis fáanlegur með rafknúnum aflrásum. Tengiltvinnbíllinn verður með stærri rafhlöðu en áður og meiri drægni eða allt að 100 km í stað 75 km áður.

Bíllinn með fimmtu kynslóðar tvinnkerfi Toyota
RAV4 tvinnbíllinn verður knúinn af 2,5 lítra fjögurra strokka vél með fimmtu kynslóðar tvinnkerfi Toyota sem skilar samanlagt 226 hestöflum með framhjóladrifi, en fjórhjóladrifsútgáfan verður með 236 hestöfl. Þetta er í fyrsta skipti sem RAV4 tvinnbíllinn er fáanlegur með framhjóladrifi.
RAV4 tengitvinnbíllinn verður knúinn af 2,5 lítra fjögurra strokka vél og tveimur rafmótorum sem skila samanlagt 320 hestöflum, sem er aukning um 18 hestöfl frá síðustu gerð. Þá kemur ný kynslóð RAV4 með nýju multi-media kerfi sem er búið nýjum hugbúnaði. Auk þess verða endurbætt aksturs- og öryggiskerfi í nýja bílnum. Í innanrýminu verður hægt að velja annað hvort 10,5 tommu eða 12,9 tommu snertiskjá og þá kemur bíllinn með 12,3 tommu stafrænu mælaborði sem staðalbúnað.
Ný og sportlegri útgáfa af bílnum RAV4 GR Sport, verður einnig í boði. Hann var hannaður með innblæstri frá Toyota Gazoo Racing liðinu. Hann er með GR-stillta fjöðrun og stýrikerfi, aukinn stífleika yfirbyggingar með 20 tommu dekk. GR Sport gerðin sker sig einnig úr með einstöku grilli og vindskeiðum að framan og aftan.