Fast­eigna­markaður lúxus­eigna í London stendur frammi fyrir lang­varandi niður­sveiflu. Verð á dýrustu eignunum hefur lækkað um meira en 20 pró­sent og allt bendir til að lækkunin eigi enn langt í land.

Viðbótar skatta­hækkanir á há­tekju­fólk, brott­flutningur er­lendra auðmanna og of­fram­boð óseldra eigna eru að ýta undir verð­fallið, sam­kvæmt Bloom­berg.

Þótt er­lendir fjár­festar hafi í ára­tugi haldið uppi eftir­spurn eftir dýrustu fast­eignum borgarinnar eru kaup­endur nú færri en áður.

Sam­kvæmt fast­eignasölunni Savills hefur verð á þessum eignum lækkað um 21% frá árinu 2014. Knight Frank mælir 19% lækkun frá há­marki í ágúst 2015.

Eignir eru nú boðnar með veru­legum af­slætti. Sot­heby’s lækkaði nýverið verð á þakíbúð í Mayfair úr 85 milljónum punda niður í 68 milljónir eftir að hafa áður verið aug­lýst fyrir um 100 milljónir. Sam­svarar það um 32% lækkun.

Sam­kvæmt fast­eigna­miðluninni Lon­Res hafa við­skipti með eignir sem eru metnar yfir 5 milljónir punda dregist saman um 15% síðastliðið ár og merki eru um aukningu á nauðungar­sölum og eignum í gjaldþrota­með­ferð.

Stór hluti skýringarinnar felst í ný­legum breytingum á skatt­kerfi Bret­lands.

Verðhrun hefur orðið á eignum í Belgravia í Lundúnum.
Verðhrun hefur orðið á eignum í Belgravia í Lundúnum.
© epa (epa)

Á þessu ári felldi ríkis­stjórnin niður skatta­legt ívilnunar­kerfi fyrir svo­nefnda „non-doms“, há­tekju­fólk sem hefur fasta bú­setu er­lendis en dvalar- og fjár­festingar­tengsl við Bret­land.

Þetta olli brott­flutningi margra auðugra ein­stak­linga og dró úr hvata til fast­eigna­kaupa. Fjár­málaráðu­neytið íhugar nú einnig breytingar á erfða­fjár­skatti, sem hefur aukið óvissu enn frekar.

Charles McDowell, sem hefur lengi sér­hæft sig í ráðgjöf við há­tekju­fólk um fast­eigna­kaup í London, segir að margir snúi sér nú að leigu­markaði í stað kaupa.

„Fólk vill bíða og sjá hver framtíð skatta­stefnunnar verður áður en það festir rætur,“ segir hann. McDowell hefur ný­lega stofnað sér­staka deild sem sinnir aðeins leigum við slíkar aðstæður.

Nokkur helstu verk­efni lúxus­markaðarins þykja nú tákn­ræn fyrir stöðuna.

Í 60 Curzon, byggingu í Mayfair sem var kynnt sem ein sú glæsi­legasta í borginni, er aðeins helmingur íbúða seldur, tíu árum eftir að kín­verskir fjár­festar tóku þar yfir meiri­hluta eignar­hlutar.

60 Curzon í Mayfair.
60 Curzon í Mayfair.

Annað dæmi er The Bry­an­ston við Hyde Park, þar sem aðeins 27 af 54 íbúðum hafa selst á fjórum árum.

The Bry­an­ston við Hyde Park er með afar flott útsýni yfir garðinn.

„Dýrðar­dagar London sem miðstöð alþjóð­legs auðs virðast liðin tíð,” segir Paul Finch, sölu­stjóri hjá Beauchamp Esta­tes. „Hagnaður af lúxus­verk­efnum er í lág­marki og mörkin milli árangurs og taps hafa aldrei verið þrengri.”

Fast­eignasér­fræðingar telja að niður­sveiflan haldi áfram út árið. Savills spáir allt að 4% viðbótar­verðlækkun á þessu ári en aðrir, svo sem Camilla Dell hjá Black Brick, telja að lækkunin geti numið allt að 8–10% áður en árinu lýkur.

Ástandið í London endur­speglar jafn­framt alþjóð­lega þróun, þar sem hert reglu­setning, erfiðara flæði alþjóð­legs fjár­magns og hærri vextir hafa dregið úr eftir­spurn eftir lúxusíbúðum víða um heim.