Akademias, sem aðstoðar vinnustaði með rafræna fræðslu, hefur ráðið Bjarna Ingimar Auðarson sem rekstrarstjóra Avia en Avia er hugbúnaður sem býr yfir þrefaldri virkni: fræðslukerfi, samskiptakerfi og innranet.
Bjarni er með yfir tveggja áratuga reynslu úr stjórnunarstörfum tengdum hugbúnaðargerð, stafrænum umbreytingum og rekstri tæknifyrirtækja. Hann mun leiða daglegan rekstur Avia hjá Akademias, stýra þróun og útfærslu lausna og fara fyrir sjö manna tækniteymi.
„Bjarni er öflug viðbót við teymið okkar. Avia hefur verið í mjög örum vexti og við leituðum því að leiðtoga sem bæði skilur tækni og rekstur. Bjarni hefur einstaka innsýn inni í hvoru tveggja. Hann hefur sýnt það í gegnum tíðina að hann getur sameinað fólk, straumlínulagað flókin kerfi og komið hugmyndum í framkvæmd,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias.
Áður en hann hóf störf hjá Akademias leiddi Bjarni þróun alþjóðlegs fræðslukerfis fyrir tæknigreinar, stýrði umfangsmiklum stafrænum umbótaverkefnum og innleiðingu viðskiptakerfa og gagnavöruhúsa. Hann hefur einnig stofnað og komið að uppbyggingu ýmissa sprotafyrirtækja.
„Það er sjaldgæft að fá að ganga til liðs við teymi sem hefur bæði metnað og skýra framtíðarsýn. Í dag eru yfir 100 vinnustaðir að nýta lausnina í sínum rekstri og þeim fjölgar mikið í hverjum mánuði. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og hjálpa Akademias að vaxa og skila enn betri lausnum til viðskiptavina okkar,“ segir Bjarni.
Akademias var stofnað árið 2020 af þeim Guðmundi Arnari Guðmundssyni og Eyþóri Ívari Jónssyni. Hjá Akademias starfa 27 manns við annars vegar stjórnendaskólann og hins vegar Vinnustaðaskólann.