Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda réð nýlega Guðmund Stefán Steindórsson sem framkvæmdastjóra sjóðsins en hann tók við af Sigurbirni Sigurbjörnssyni sem lét af störfum í byrjun mánaðar eftir tæplega 40 ára feril.

Guðmundur hefur starfað hjá SL lífeyrissjóði í tæpan áratug sem sviðsstjóri áhættustýringar og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan sjóðsins.

„Ég er að taka við góðu búi frá Sigurbirni en hann er að skila sjóðnum á góðum stað. Við erum 17 talsins hérna og þetta er góður hópur með góðan starfsanda. Sjóðurinn hefur líka skilað góðum árangri til langs tíma með því að vera varkár fjárfestir.“

Guðmundur er menntaður verkfræðingur en hann fór beint í það nám eftir útskrift frá MR árið 2000. Á þeim tíma starfaði hann einnig hjá verkfræðistofu sem hét Hönnun en hélt svo til Danmerkur í iðnaðarverkfræði við DTU.

Nánar er fjallað um Guðmund í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.