Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur ráðið tvo nýja framkvæmdastjóra. Guðmundur Arason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Leiguþjónustu FSRE og Sigurður Arnar Jónsson er nýr framkvæmdastjóri Eigna- og aðstöðustýringar FSRE.

Guðmundur Arason var forstjóri Securitas á árunum 2010-2017. Síðan þá hefur hann starfað sem stjórnendaráðgjafi og sinnt ráðgjöf hjá fjölda fyrirtækja í stefnumótun og endurskipulagningu rekstrar. Guðmundur er með cand. oecon gráðu með áherslu á fjármál frá Háskóla Íslands.

Hlutverk Leiguþjónustu FSRE, sem Guðmundur stýrir, er að tryggja vandaða og hentuga aðstöðu fyrir ýmsa þjónustu ríkisins og hámarka þannig ánægju notenda aðstöðu. Samhliða keppir sviðið að því að auka samlegð og samnýtingu húsnæðis til að lágmarka aðstöðukostnað ríkisins. Sviðið skiptist í Leigutorg, sem heldur utan um leigusamninga og Viðhalds- og aðstöðuþjónustu, sem hefur umsjón með daglegum rekstri og viðhaldi húsnæðis, aðstöðu og tæknikerfa í umsjá FSRE.

Sigurður Arnar Jónsson starfaði sem forstjóri Motus (Intrum Justitia) frá 1997-2021 og tók þátt í að byggja fyrirtækið upp frá grunni. Á þeirri vegferð tók Motus m.a. yfir 25-30 smærri einingar samhliða því að byggja upp net útibúa á Íslandi, í Færeyjum og í Kanada. Sigurður er með cand. oecon gráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskóla Íslands en hann er auk þess löggiltur verðbréfamiðlari, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali og löggiltur leigumiðlari.

Hlutverk Eigna- og aðstöðustýringar FSRE, sem Sigurður Arnar fer nú fyrir, er að hámarka ávinning af eignum FSRE með skilvirkri nýtingu, lækkum heildarkostnaðar og minnkun umhverfisáhrifa eignasafnsins, samhliða því að auka gæði safnsins. Í safninu eru 530 þúsund fermetrar húsnæðis, um 300 jarðir auk náttúruauðlinda.

Framkvæmdastjórn FSRE skipa nú:

  • Guðrún Ingvarsdóttir forstjóri
  • Sólrún Jóna Böðvarsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og stafrænna innviða
  • Þröstur Söring framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda
  • Sigurður Arnar Jónsson framkvæmdastjóri eigna og aðstöðustýringar
  • Guðmundur Arason framkvæmdastjóri leiguþjónustu.

SRE stýrir um 530 þúsund fermetra fasteignasafni ríkisins og um 300 ríkisjörðum. Stofnunin sér um öflun leiguhúsnæðis fyrir ríkisaðila og hefur á sinni könnu um 150 þróunarverkefni sem lúta að aðstöðuöflun- og uppbyggingu fyrir flestar greinar ríkisvaldsins. Á þessu ári mun stofnunin greiða út  um 14 milljarða í verkefni sem þegar eru í byggingu og þróun. Þá hyggst stofnunin bjóða út verkefni alls að verðmæti 17,6 milljarða á árinu 2022. Starfsfólk stofnunarinnar er nú 57 talsins og er stofnunin til húsa í Borgartúni 7a.

Framkvæmdastjórn FSRE.
Framkvæmdastjórn FSRE.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Í framkvæmdastjórn FSRE sitja Sigurður Arnar Jónsson, Guðmundur Arason, Guðrún Ingvarsdóttir, Þröstur Söring og Sólrún Jóna Böðvarsdóttir.