Fastus hefur ráðið Gunnlaug Magnússon í stöðu deildarstjóra tæknideildar fyrirtækisins sem ber heitið Fastus Expert. Hann mun einnig taka sæti í framkvæmdastjórn Fastus.
Gunnlaugur er menntaður verkfræðingur og síðustu ár hefur hann starfað sem forstöðumaður skiparekstrar Eimskips. Þar áður starfaði hann um árabil hjá Marel þar sem hann gegndi ýmsum hlutverkum.
„Þetta er spennandi og um leið krefjandi verkefni í ört vaxandi fyrirtæki. Fastus expert sinnir mjög fjölbreyttum og sérhæfðum verkefnum fyrir viðskiptavini af fagmennsku og gæðum,“ segir Gunnlaugur.
Hjá Fastus Expert starfa 50 sérþjálfaðir tæknimenn og eru verkstæði þess staðsett í Reykjavík, Akureyri og á Selfossi.