Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar, hefur tekið við sem stjórnarformaður Samherja hf. samkvæmt færslu hans á LinkedIn í gærkvöldi. FF7 greindi fyrst frá.

Jón tekur við stjórnarformennskunni af Baldvini Þorsteinssyni sem mun færa sig yfir í hlutverk forstjóra Samherja. Baldvin hefur verið stjórnarformaður félagsins frá árinu 2023.

Samherja greindi fyrir mánuði síðan að Þorsteinn Már Baldvinsson, einn stofnenda félagsins, myndi láta af störfum sem forstjóri félagsins í þessum mánuði og Baldvin myndi taka við keflinu.

Jón starfaði sem forstjóri Össurar í 26 ár eða yfir tímabilið 1996-2022. Hann starfar í dag sem stjórnarformaður Sets ehf. og sænsku félaganna Vitrolife og Stille AB.