FlyOver Iceland hefur ráðið Svanlaugu Rós Ásgeirsdóttur sem framkvæmdastjóra. Svanlaug býr að víðtækri reynslu úr ferðaþjónustu og sérfræðiþekkingu á sviði sölu- og markaðsmála og hefur áður starfað m.a. hjá Islandia 360, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og Icelandia.
Svanlaug er með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistarapróf í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá EHÍ.
FlyOver telur mikinn feng að Svanlaugu með sína víðtæku reynslu af íslenskri ferðaþjónustu, hvarvetna með afbragðsárangri.
„Stjórn félagsins lítur björtum augum til framtíðar með hana í fararbroddi við að efla félagið í því að gera enn betur við gesti sína, erlenda sem innlenda, og færa þeim einstakt sjónarhorn á stórbrotna náttúru Íslands með sýndarflugi, byggðu á nýjustu og bestu tækni,“ segir í tilkynningu.