Fyrr í mánuðinum var Íris Björk Hreinsdóttir ráðin yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og hefur Íris þegar hafið störf. Hún hefur mikla þekkingu og reynslu af fjölbreyttum hliðum fjármálamarkaðar og atvinnulífsins.

Undanfarin ár hefur Íris sinnt ráðgjöf við fyrirtæki, stofnanir og hið opinbera. Hún segist nú vera spennt fyrir nýja starfinu og telur að áratugareynsla hennar í hinum ýmsu hliðum markaðarins muni koma til með að skila sér í starfi.

Íris segir að SFF séu öflug hagsmunasamtök og telur fjármálakerfið mikilvægan hluta af innviðum samfélagsins.

„Ég stefndi alltaf á lögfræðina og í námi leitaði hugurinn strax inn á fjármálamarkað. Áður en ég útskrifaðist þá byrjaði ég að vinna hjá Fjármálaeftirlitinu, meðal annars sem upplýsingafulltrúi, og vann þar fyrir hrun, í miðju hruni og svo í úrvinnslunni.“

Nánar er fjallað um Írisi í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.