Landsvirkjun og hátæknifyrirtækið atNorth, áður Advania Data Centers (ADC), hafa undirritað nýjan raforkusamning til tveggja ára til að styðja við áframhaldandi vöxt gagnavera atNorth. Fyrr á árinu var gengið frá öðrum slíkum samningi og er því um mikla aukningu í viðskiptum að ræða á stuttum tíma. Þetta kemur fram í fjölmiðlatilkynningu.
Starfsmenn atNorth eru um 50 talsins auk fjölda verktaka og árleg heildarvelta nemur yfir sex milljörðum króna. Starfsemin fer að mestu fram hér á landi en í lok ársins er áformað að taka í notkun gagnaver í Stokkhólmi, þar sem hitinn frá tölvubúnaði verður nýttur til húshitunar.
Gagnaverið sem staðsett er á Fitjum í Reykjanesbæ er eitt það stærsta í Evrópu. Raforkusamningurinn gerir atNorth kleift að mæta sívaxandi eftirspurn eftir ofurtölvuafli og sérfræðiþjónustu í bálkakeðjutækni (e. blockchain). Í takt við aukna eftirspurn var nýverið lokið við stækkun á þeim hluta gagnaversins sem tryggir hámarks rekstraröryggi og uppfyllir strangar öryggiskröfur.
„Gagnaversiðnaður er í örum vexti á heimsvísu og nágrannalöndin keppast við að laða slíka starfsemi til sín. Samstarfið við atNorth hefur verið með miklum ágætum og nýr raforkusamningur samkeppnishæfur í alþjóðlegu tilliti. Kröfur um sjálfbærni í rekstri fyrirtækja eru að aukast og veitir raforka úr endurnýjanlegum orkulindum viðskiptavinum visst samkeppnisforskot. Það er afar ánægjulegt að rekstur atNorth gengur vel og geta stutt við áframhaldandi vöxt félagsins," segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningunni.
„Mikil tækifæri eru falin í því fjölbreytta þjónustuframboði sem við höfum byggt upp í okkar gagnaverum hér á landi en undanfarin misseri hefur áhugi á þeim gagnaversþjónustum sem lúta háum rekstrar- og öryggiskröfum verið mikill og leitt af sér umfangsmikil verkefni hjá okkur. Okkar núverandi viðskiptavinir hafa verið að stækka talsvert við sig en við verðum einnig vör við aukningu í eftirspurn frá nýjum aðilum frá fyrra ári. Ef fram heldur sem horfir mun ekki verða neitt lát á uppbyggingarverkefnum tengdum öruggum gagnavershýsingum okkar bæði hérlendis og erlendis," segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, í tilkynningunni.