Advania og Data Dwell ehf. hafa komist að samkomulagi um kaup Advania á öllum Salesforce viðskiptum Data Dwell. Með kaupunum tekur Advania yfir allar skuldbindingar gagnvart þeim viðskiptavinum sem þetta snertir.
Advania er stærsti endursöluaðili Salesforce lausna á Íslandi. Salesforce er skýjalausn sem býður upp á alhliða stjórnun viðskiptatengsla (CRM). Lausnin er sögð gera fyrirtækjum kleift að stjórna samskiptum við sína viðskiptavini og einfalda ferla í sölu, þjónustu og markaðsmálum.
„Við fögnum því að geta stutt við stafræna vegferð fyrirtækja. Advania á að baki ótal vel heppnuð verkefni í Salesforce með okkar frábæru viðskiptavinum og hefur Salesforce verið nýtt af mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins um árabil. Okkur er mikil ánægja af því að geta stækkað ánægðan Salesforce viðskiptavinahóp Advania,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, í tilkynningu.