Áætluð heildarfjárhæð í fyrirhuguðum verklegum útboðum þeirra tíu opinberu verkkaupa sem taka þátt í Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins (SI), Samtaka innviðaverktaka og Mannvirkis – félags verktaka 2025 nemur 264,2 milljörðum króna.
Þetta er nær tvöföldun frá þeim útboðum sem raungerðust árið 2024 en þau námu 134,5 milljörðum króna, að því er kemur fram í nýrri greiningu SI.
Landsvirkjun, FSRE og NLSH með 70%
Umfangsmest eru fyrirhuguð útboð Landsvirkjunar sem eru áætluð 92 milljarðar króna fyrir árið 2025. Fram kemur þau nemi ríflega 35% af öllum fyrirhuguðum útboðum opinberra aðila sem taka þátt í Útboðsþingi SI í ár.
Aðrir sem boða umfangsmikil útboð á árinu eru FSRE með 50,2 milljarða króna og NLSH með 42,5 milljarða króna.
Samanlagt eru þessir þrír aðilar með boðuð verkútboð fyrir 184,7 milljarða króna á árinu eða um 70% af fyrirhuguðum útboðum 2025. Aðrir þátttakendur þingsins fyrirhuga að bjóða út verk fyrir minna en 20 milljarða króna hver á árinu.
Útboð síðasta árs þriðjungi undir áætlun
Í greiningu SI var bent á að á Útboðsþingi 2024 hafi verið kynnt áform tíu opinberra aðila um fyrirhuguð útboð fyrir 203 milljarða króna á því ári. Í lok árs höfðu hins vegar aðeins útboð fyrir 134,5 milljarða króna raungerst.
„Útboð síðasta árs voru því 68,5 milljörðum minni en boðað var, eða um 34% lægri. Mestur munur var á fyrirhuguðum útboðum og raunútboðum hjá Landsvirkjun árið 2024, eða 62 milljarðar króna. Sá munur skýrir nær 91% af fjárhæðum þeirra fyrirhuguðu útboða sem ekki raungerðust á árinu.“
SI segir að öðrum opinberum verkkaupum hafi heilt yfir tekist að koma boðuðu fjármagni í útboð en ekki endilega boðuðum verkefnum.
Áréttað er að þær áætlanir um útboð sem kynntar eru á Útboðsþingi SI eru ekki fastar í hendi og ber því að taka þeim með fyrirvara. Þá sé einnig rétt að taka fram að verkefni sem fara í útboð á árinu geta komið til framkvæmda á næstu árum.
Áætluð fjárfesting eykst um 23%
Áætlað er að opinberir aðilar fjárfesti fyrir 180,3 milljarða króna á þessu ári, sem er 33,2 milljörðum króna meira en árið 2024. Ef það raungerist jafngildir það 23% aukningu á milli ára.
Til samanburðar námu fyrirhugaðar fjárfestingar á árinu 2024 samkvæmt Útboðsþingi SI um 168,8 milljörðum króna. SI segir ný gögn sýna að fjárfesting ársins hafi í raun numið 147,1 milljarði króna, sem er tæplega 13% undir áætlunum.