Aur, sem er í eigu Kviku, hefur opnað nýja bankaþjónustu og mun bjóða upp á hagstæðustu debetkortareikninga sem völ er á, að því er segir í tilkynningu. Debetkort Aurs eru án allra gjalda og verða þau fyrstu með endurgreiðslu.

Aur reikningarnir eru með 4% vöxtum sem greiddir eru mánaðarlega, engu stofngjaldi, árgjaldi né færslugjöldum. Þá fá korthafar Aurs 2,6% endurgreiðslu af erlendum greiðslum og allt að 10% endurgreiðslu þegar verslað er hjá Vinum Aurs.

Endurgreiðslurnar eru í formi Klinks, vildarkróna Aurs, sem viðskiptavinir geta notað til að borga með á markaðstorgi Aurs, breytt í sparnað hjá Auði eða sent áfram á vini.

Aur kortið.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Síðustu misseri hefur verið unnið hörðum höndum að því að þróa nýja bankaþjónustu hjá Aur og nú kynnum við bestu mögulegu kjör á debetkortareikningum, auk þess sem viðskiptavinir fá borgað til baka fyrir að nota kortið,“ segir Sverrir Hreiðarsson, forstöðumaður fjártækni hjá Kviku.

„Með tilkomu Auðar á sínum tíma breytti Kvika markaðnum fyrir sparnaðarreikninga og bauð allt að tvöfalt betri vexti en þekktust. Neytendur tóku þessari nýju þjónustu vel enda eru viðskiptavinir Auðar rúmlega 45 þúsund talsins. Nú er komið að því að breyta almennri bankaþjónustu, debetkortamarkaðnum – neytendum til hagsbóta. Erlend debetkortavelta er 114 milljarðar króna á ári og endurgreiðsluhlutfall Aurs jafngilti 3 milljörðum af þeirri upphæð.“

Ármann: Neytendur njóta góðs af lítilli yfirbyggingu

Aur var stofnað árið 2015 sem einföld leið til að millifæra peninga með því einu að nota símanúmer. Notendur Aurs eru nú um 125 þúsund talsins.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, segir að notendur Aurs njóti ávinnings af lítilli yfirbyggingu og snjöllum tæknilausnum félagsins.

„Markmið Kviku er að auka samkeppni í fjármálaþjónustu og einfalda fjármál viðskiptavina. Aur hefur verið leiðandi í fjártækni á Íslandi og með nýju bankaþjónustunni er enn eitt skrefið tekið á þeirri vegferð þar sem boðið verður upp á þjónustu sem hefur ekki verið áður í boði á íslenskum markaði. Lítil yfirbygging og vel útfærðar tæknilausnir gera okkur kleift að bjóða upp á betri kjör og snjallari nálgun en þekkist,“ segir Ármann.

Auk framangreinds debetkorts býður Aur m.a. upp á kreditkort með 0,5% endurgreiðslu af allri verslun, vildarkerfið Klink, Klíkuna sem heldur utan um kostnað og uppgjör sameiginlegra útgjalda vina og hópa, 5x greiðsludreifingu þar sem hægt er að dreifa kortafærslum, vörukaupum eða ógreiddum reikningum í fimm greiðslur á góðum kjörum, og þrenns konar tryggingar.