Norður-Kórea mun formlega opna sólstrandaráfangastaðinn Wonsan Kalma þann 1. júlí nk. í von um að auka tekjur frá ferðaþjónustu. Framkvæmdum ferðamannabæjarins átti hins vegar að ljúka fyrir sex árum.
Á vef BBC segir að Wonsan Kalma, sem nær yfir 4 km langa strandlengju, muni geta hýst allt að 20 þúsund gesti. Samkvæmt norðurkóreskum ríkisfjölmiðlum má þar finna hótel, veitingastaði, verslunarmiðstöðvar og vatnsgarða.
Norður-Kórea, sem er meðal fátækustu landa heims, eyðir megninu af fjármunum sínum í hermál, minnismerki og kennileiti sem tileinkuð eru Kim-fjölskyldunni sem stjórnað hefur landinu síðan 1948.

Sérfræðingar segja að Kim-stjórnin líti á verkefnið sem auðvelda leið til að afla sér tekna. Það er hins vegar óljóst hvenær erlendum ferðamönnum verði hleypt inn í norðurkóresku sólina en flestir erlendir ferðamenn eru skipulagðir ferðahópar frá Kína og Rússlandi.
Ferðaþjónusta í Norður-Kóreu varð fyrir barðinu á heimsfaraldrinum og voru landamæri þess lokuð árið 2020. Árið 2023 var þeirri lokun aflétt að hluta til og var rússneskum ferðamönnum hleypt inn ári síðar.
Ríkisstjórn Norður-Kóreu ákvað svo að bjóða ferðamönnum frá Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Ástralíu velkomna í febrúar á þessu ári. Ríkisborgarar frá þeim löndum fengu að ferðast til Norður-Kóreu frá Kína en stjórnvöld ákváðu síðan að snarhætta þeirri stefnu án þess að greina frá ástæðu.