Undirritaður hefur verið kaupsamningur um kaup eignarhaldsfélags í eigu Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur á 100% hlutafjár í S. Guðjónssyni ehf. Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að nýir eigendur hafa tekið við rekstrinum.
S. Guðjónsson ehf. er til húsa að Auðbrekku 9-11 í Kópavogi. Það er leiðandi innflutningsfyrirtæki með sérhæfðan lýsinga-, raf-, og tölvulagnabúnað sem leggur metnað sinn í að bjóða lausnir fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Meðal þekktustu vörumerkja félagsins eru GIRA, GE Power Controls og GE Lightning.
Stofnun S. Guðjónssonar ehf. má rekja allt aftur til ársins 1958 þegar stofnandi félagsins, Sigurður R. Guðjónsson, hóf störf sem rafverktaki. Fyrirtækið leggur áherslu á þekkingu og frumkvæði og vinnur þess vegna náið með rafhönnuðum og arkitektum.
Seljendur félagsins, þeir Rikharð Sigurðsson og Sigurjón Sigurðsson, munu fyrst um sinn starfa áfram hjá félaginu, sem verður áfram rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. Það er til húsa að Auðbrekku 9-11 í Kópavogi.
Fyrir í eigu eignarhaldsfélaga Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur eru Johan Rönning hf. og Sindra-Stál hf.
Ráðgjafi kaupenda er Sparisjóðabanki Íslands. Ráðgjafi seljenda er IFS ráðgjöf.