Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll rúmlega 233 þúsund í júní. Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í júní metárið 2018.

Brottfarir Íslendinga voru um 55 þúsund eða 77% af því sem þær mældust árið 2018 þegar mest var.

Af þeim 233 þúsund erlendum farþegum voru Bandaríkjamenn 101 þúsund, eða tvær af hverjum fimm brottförum. Bandaríkjamenn voru þar 43,4% af öllum brottförum en þeir hafa verið stærsta þjóðernið í júnímánuði frá árinu 2011.

Í öðru sæti voru Þjóðverjar með 18 þúsund brottfarir, eða 7,6% af heild. Þar á eftir koma Pólverjar, Bretar, Frakkar, Hollendingar og Spánverjar.

Ferðamálastofa greinir einnig frá því að 953 þúsund erlendir farþegar hafi farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 51% fjölgun miðað við 2022.